Sundmenning Íslands á lista UNESCO Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. desember 2025 10:19 Drangsnes er stærsti þéttbýlisstaðurinn í Kaldrananeshreppi. Þar leika pottarnir við sjóinn lykilatriði en þar er líka að finna flotta sundlaug. Vísir/Vilhelm Að stinga sér til sunds í íslenskri sundlaug er ekki lengur bara hversdagsleg athöfn. Ekki frekar en að setjast niður og borða heimatilbúna máltíð á Ítalíu. Hvoru tveggja bætist á lista UNESCO yfir óáþreifilegan menningararf í vikunni.
Ísland var á meðal 77 þjóða sem sóttu um viðurkenningu frá UNESCO í ár. Fram kemur í umfjöllun New York Times að UNESCO-stimpill hjálpi þjóðum að laða til sín ferðamenn. Frá árinu 2003 hefur menningar- og menntamálastofnun Sameinuðu þjóðanna statt og stöðugt fjölgað þeim hefðum sem ástæða þykir til að varðveita. Á listanum má finna matar- , dans- og brúðkaupshefðir svo fátt eitt sé nefnt. Alls hafa 185 þjóðir fengið hefð sína metna á listann. Árlega kemur það í hlut nefndar með 24 fulltrúum að fara yfir umsóknir og að þessu sinni hlaut sundmenning okkar náð fyrir augum dómnefndar. Meðal annars er horft til jafnréttis og sannleiksgildi fullyrðinga um að hefðirnar eigi ríkan stuðning í samfélaginu. Þá er litið til umhverfismála og sjálfbærni. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingum hlotnast þessi heiður en árið 2021 var norræn skipasmíði þó sett á listann og öll norðurlöndin þá heiðruð í sameiningu. Fjallað er um sundlaugarhefð Íslendinga á vef UNESCO er varðar útbreiddrar notkunar upphitaðra útilauga. „Þrátt fyrir kalt loftslag eru þessar sundlaugar afar vinsælar og standa öllum opin, óháð aldri, bakgrunni eða getu. Fólk sækir laugarnar af ýmsum ástæðum — til að hreyfa sig, slaka á eða hitta aðra. Sundlaugar í almennri eigu eru reknar af samfélaginu fyrir samfélagið, og það fyrirkomulag hefur skapað sérstaka félagslega vettvanga. Heitir pottar hafa til dæmis þróast í óformlega umræðustaði þar sem fólk spjallar um málefni líðandi stundar. Sundlaugarhefðin hefur borist milli kynslóða: foreldrar fara með ungbörn sín í laugina og börnin halda áfram að sækja laugarnar þegar þau eldast — í sundkennslu, skólastarfi eða í frístundum með vinum og fjölskyldu.“ Sundlaugarhefðin á Íslandi taki á móti öllum kynjum, þjóðernum og getu. „Börn læra reglur og siði laugarinnar bæði í formlegri kennslu og í samskiptum við jafningja, fjölskyldu og starfsfólk. Ungmennafélög, íþróttafélög og eldri gestir lauganna gegna líka mikilvægu hlutverki í að miðla hefðinni til næstu kynslóða. Sundlaugar eru órjúfanlegur hluti af daglegu lífi þeirra sem iðka þessa hefð. Þær styðja við líkamlega, andlega og félagslega heilsu og veita jafnframt rými til tengsla. Þar skapast einnig umburðarlyndi, gagnkvæm virðing og samheldni meðal fólks úr öllum áttum.“ X X X Reykjavíkurborg segir í tilkynningu um að ræða stóran áfanga og mikla viðurkenningu á menningarlegu gildi sundlaugamenningar. „Í mars 2024 var sundlaugamenning á Íslandi tilnefnd á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns. Í kjölfarið tók við 18 mánaða matsferli innan UNESCO sem lauk formlega í dag með fundi milliríkjanefndar samningsins sem fram fór í Nýju Delí á Indlandi þegar nefndin staðfesti að sundlaugarmenning Íslands hlýtur þessa æðstu viðurkenningu á sviði lifandi hefða.“Þetta er fyrst sjálfstæða skrásetning Íslands á listann. „Að baki skrásetningunni liggur mikil undirbúningsvinna sem var í höndum Þjóðminjasafns Íslands og áður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum auk þess sem fjölmargir sundlaugagestir, hópar, félagasamtök og sveitarfélög komu að og studdu tilnefninguna með ýmsum hætti.“Í skrásetningunni felist viðurkenning á menningarlegu gildi sundlaugamenningar. „Í tilnefningunni var lögð áhersla á sundlaugar sem almenningsrými og almenningsgæði, þar sem allar kynslóðir, fólk af öllum gerðum og stærðum, kemur saman til að synda, hreyfa sig, spjalla við félaga eða ókunnuga, njóta samfélags eða einveru umlukið vatni. Sundlaugamenning er hluti af hversdagsmenningu landsmanna, þar mætist fólk á baðfötum á jafningjagrundvelli. Sundlaugamenning styður þess vegna við líkamlega, andlega og félagslega heilsu.“ Borgarstjóri stoltur „Hitaveitan og sundlaugarnar eru stór hluti af menningu og sögu okkar Reykvíkinga og við erum stolt af þessari viðurkenningu UNESCO,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri. „Þær átta sundlaugar sem Reykjavíkurborg rekur eru hver með sína sérstöðu og sérstöku menningu en eiga það allar sameiginlegt að vera griðastaðir í flóknum og annasömum heimi. Það er satt sem oft er sagt að allir eru jafnir í sundi og það er fátt dásamlegra en að sjá borgarbúa á öllum aldri sækja í sundlaugarnar til að næra líkama og sál.“ Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra tekur undir. „Ég fagna því gríðarlega að UNESCO hafi nú staðfest það sem við vitum - að íslensk sundlaugarmenning er engri lík! Skráningin er ekki síður mikilvæg áminningu um hversu mikill fjársjóður er fólginn í sundlaugarmenningu okkar. Að setja vatn í steypulaug er eitt en samtölin og samveran, oft á milli ólíkra fólks sem þekkjast jafnvel lítið eða ekki neitt, er eitthvað annað. Yfir 120 laugar eru um allt land sem eru í senn heilsueflandi bæði líkamlega og andlega og einn vinsælasti samkomustaður þjóðarinnar. Hver sundlaug hefur sitt sérkenni og ber með sér karakter síns bæjarfélags og gesta. Sundlaugar eru einn fárra staða þar sem símar eru skildir eftir og fólk talar raunverulega saman. Ég hvet sem flesta til þess að leita í sundlaugarnar eftir slökun og góðum samverustundum ekki síst nú þegar margir upplifa streitu í aðdraganda jóla. Þá er fátt betra en að skola af sér streituna, losa um málbeinið og njóta sundlaugarmenningarinnar.“ Franskt bagette og saunamenning á listanum Þá segir að UNESCO geri ríka kröfu um þátttöku þeirra sem þekkja og stunda hefðina og því var óskað eftir stuðningi almennings við tilnefninguna. „Haldnir voru fundir víðs vegar um landið þar sem tilnefningin var kynnt og óskað eftir sjónarmiðum viðstaddra. Fjölmargir sundlaugagestir og sundhópar víða um land lögðu tilnefningunni lið, sögðu frá upplifun sinni af sundlaugamenningu og lýstu yfir stuðningi við tilnefninguna. Hið sama á við um sundfélög sem og Sundsamband Íslands og Ungmennafélag Íslands.“Rekstur sundlauga er í höndum sveitarfélaga og sendu tíu sveitafélög skriflega stuðningsyfirlýsingu, þar á meðal Reykjavíkurborg sem einnig hafði veg og vanda að gerð 10 mínútna myndbands um sundlaugamenningu sem fylgdi tilnefningunni. Þá studdi þáverandi forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, tilnefninguna dyggilega.„Lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf hefur verið lýst sem litlu systur hinnar þekktu heimsminjaskrár. Á listanum er að finna afar fjölbreytt dæmi um menningararfleifð mannskyns en þar eru yfir 800 skrásetningar frá yfir 150 löndum. Dæmi um skrásetningar á listanum eru kínverskt skuggabrúðuleikhús, belgísk bjórmenning, miðjarðarhafsmataræði, franska bagettið og finnsk saunamenning. Á fundinum í Nýju Delí bættust auk íslensku sundlaugamenningarinnar á listann ljósahátíð Hindúa, Deepavali, frá Indlandi, marionette strengjabrúðuleikhús frá Belgíu, handverk við hefðbundna japanska papprísgerð og svissneska jóðlið.“
Sundlaugar og baðlón Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Innlent Stungan leiddi til skurðar Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Fleiri fréttir Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Sjá meira