„Fólk veit ekki hvað maður gengur í gegnum heima hjá sér“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. desember 2025 12:31 Gareth Bale endaði feril sinn á HM í Katar fyrir þremur árum síðan. Getty/Pablo Morano Gareth Bale hefur nú afhjúpað sannleikann um það af hverju hann hætti í fótbolta aðeins 33 ára gamall.
Bale, sem var lengi dýrasti knattspyrnumaður heims, lauk ferli sínum fyrir þremur árum síðan og kom sú ákvörðun mörgum á óvart. Síðasti leikur hans var síðasti leikurinn í riðlakeppni heimsmeistaramótsins í Katar þegar Wales tapaði 3-0 fyrir Englandi. Í nýju viðtali segir sá velski í fyrsta sinn frá helstu ástæðunum á bak við ákvörðunina um að halda ekki áfram að spila fótbolta á hæsta stigi. „Fólk veit ekki hvað maður gengur í gegnum heima fyrir. Pabbi minn, Frank, veiktist og það hafði mikil áhrif á ákvörðun mína. Ég áttaði mig á því að lífið er meira en bara fótbolti,“ segir Gareth Bale við GQ-tímaritið. Pabbi hans, Frank, var áður húsvörður í skóla heima í Cardiff og veiktist þarna mjög skyndilega. Bale hefur áður talað um hversu mikilvægur pabbi hans hefur verið fyrir hann. „Pabbi minn fórnaði öllu þegar ég var yngri. Hann fór með mig alls staðar. Án pabba míns og foreldra minna væri ég ekki þar sem ég er í dag,“ sagði Bale. Nú, 36 ára að aldri, finnst honum engin ástæða til að sjá eftir ákvörðun sinni. Síðasta tímabilið var með Los Angeles FC í bandarísku MLS-deildinni, en hann er auðvitað þekktastur fyrir tíma sinn hjá Tottenham og hjá Real Madrid þar sem hann vann Meistaradeildina fimm sinnum. Fótboltastjarnan, sem áður var fjölmiðlafælin og hlédræg, er nú byrjuð að starfa sem sérfræðingur fyrir TNT Sports og CBS Sports.
Spænski boltinn Enski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira