Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Atli Ísleifsson skrifar 9. desember 2025 07:44 Vakin er athygli gildandi á veðurviðvörnum fyrir Suður- og Suðausturland. Vísir/RAX Víðáttumikið lægðasvæði suður af landinu veldur áframhaldandi austan- og norðaustanáttum með rigningu eða slyddu öðru hvoru, þó að verði lengst af þurrviðri á Suður- og Vesturland.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði hvasst sunnantil, einkum í Öræfum, Mýrdal og undir Eyjaföllum, en þar megi einnig búast við snörpum vindhviðum við fjöll sem geti verið varhugaverðar ökutækjum sem taki á sig mikinn vind. Vakin er athygli gildandi á veðurviðvörnum fyrir Suður- og Suðausturland. Hiti verður á bilinu tvö til átta stig, mildast syðst. Dregur smám saman úr vindi á morgun, en áfram strekkingur eða allhvasst um kvöldið. Á fimmtudag nálgast kröpp og djúp lægð úr suðri, en tölvuspár eru nokkuð á reiki um feril hennar. Sumar spár gera ráð fyrir að lægðin verði all nærgöngul og er þá er búist við austanhvassviðri eða -stormi með talsverðri rigningu og hlýindum. Spákort fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austan og norðaustan 10-18 m/s og víða él, en skýjað sunnantil og sums staðar rigning við ströndina. Hiti víða 2 til 6 stig, en nærri frostmarki norðantil. Á fimmtudag: Vaxandi austanátt, hvassviðri eða stormur með rigningu, slyddu eða eða snjókomu uppúr hádegi, talsverð úrkoma suðaustantil seinnipartinn. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst. Á föstudag: Stíf austan- og norðaustanátt og víða rigning eða slydda, en él norðantil. Hiti 0 til 5 stig. Á laugardag: Suðlæg eða breytileg átt og slydda eða snjókoma með köflum, en dálítil él norðan heiða. Hiti nærri frostmarki. Á sunnudag: Útlit fyrir ákveðna vestlæga eða norðvestlæga átt með snjókomu eða éljum í flestum landshlutum og kólnandi veður. Á mánudag: Líklega hægir vindar, stöku él og svalt í veðri.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira