Valur dregur sig úr Bose-bikarnum Valur Páll Eiríksson skrifar 5. desember 2025 15:59 Valur átti að mæta KR í Bose-bikarnum á morgun. Vísir/Guðmundur Karlalið Vals í fótbolta hefur dregið sig úr Bose-bikarnum í fótbolta vegna slæmrar stöðu á leikmannahópi liðsins. Mikil meiðsli og veikindi eru í leikmannahópi liðsins í aðdraganda móts sem fer að stærstum hluta fram í desember.
Valur átti að sækja KR heim á Meistaravelli á morgun í fyrsta leik mótsins en það markar gjarnan upphaf undirbúningstímabilsins hjá fremstu félögum landsins. Tilkynnt var um það á stuðningsmannasíðu KR í dag að leikurinn færi ekki fram þar sem Valur hefði dregið sig úr keppninni. KR myndi þess í stað leika æfingaleik við FH en FH-ingar eru í hinum riðli keppninnar. Gareth Owen, tæknilegur stjórnandi knattspyrnudeildar Vals, staðfestir tíðindin við íþróttadeild. Gareth Owen, tæknilegur stjórnandi knattspyrnudeildar Vals.Mynd/Valur Hann segir að ákveðið hefði verið að draga Valsliðið úr keppni vegna mikilla veikinda auk meiðsla í hópi liðsins. Valsmenn hófu æfingar aðeins seinna en önnur Bestu deildar lið sökum þeirra breytinga sem urðu á þjálfarateymi liðsins en því var öllu skipt út í vetur. Lítilsháttar meiðsl hafa tekið sig upp þegar æfingar fóru af stað af fullum krafti í vikunni. Verandi nýkomnir af stað með sitt undirbúningstímabil hafi nýtt þjálfarateymi ákveðið, heilsu leikmanna vegna, að best væri að skuldbinda sig ekki við komandi leiki. Valur átti að mæta KR á morgun og Stjörnunni viku síðar í þriggja liða A-riðli mótsins. Líkt og áður segir mætir KR liði FH í æfingaleik á morgun þess í stað og munu KR og Stjarnan því að líkindum spila innbyrðis úrslitaleik um sigur í A-riðli sem telur þá aðeins tvö lið. Í B-riðli mótsins eru Víkingur, ÍA og FH. Víkingur og ÍA eigast við í Víkinni klukkan 14:00 á morgun. Nánari upplýsingar um Bose-mótið má nálgast hér.
Valur Besta deild karla Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Sakar konung síðustu Vetrarólympíuleika um svindl Sport „Þetta er ógeðslegt starf“ Körfubolti Vill að Messi segi sannleikann Fótbolti Þakklátur eftir drauminn sem breyttist í martröð Enski boltinn Ráðþrota Verstappen vonast til að Formúlan „verði skemmtilegri“ Formúla 1 „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Íslenski boltinn Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Handbolti Sagði 35 sinnum fyrirgefðu við boltastrákinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Sjá meira