„Aðeins öðruvísi handbolti“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. nóvember 2025 12:17 Arnar Pétursson ætlar að stýra Íslandi til sigurs í dag. vísir / hulda margrét Ísland mætir Úrúgvæ í þriðja leik riðlakeppninnar á HM í handbolta og mun annað hvort komast áfram í milliriðil eða detta niður í keppnina um Forsetabikarinn. „
Þær spila óhefðbundinn handbolta. Þegar við horfum á taktíkina hjá þeim þá er hellingur í gangi, alls konar árásir sem við þurfum að passa mjög vel“ segir landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson um andstæðing dagsins. Klippa: Stelpurnar okkar ætla sér sigur Úrúgvæ hefur ekki riðið feitum hesti á þessu móti. Fyrsti leikurinn gegn Serbíu tapaðist með 12 mörkum og næsti leikur gegn Þýskalandi með 26 marka mun. Arnar líkir úrúgvæska liðinu við annað lið frá Suður-Ameríku sem Ísland mætti á síðasta HM, sá leikur vannst örugglega með sex mörkum þrátt fyrir frekar slakan sóknarleik hjá stelpunum okkar. „Þetta er ekki ósvipað dæmi og gegn Paragvæ fyrir tveimur árum, þetta er aðeins öðruvísi handbolti og við þurfum að vera undir það búin… Þær eru líka þrælsterkar þegar þær ná að stilla upp í vörn, þannig að við þurfum að undirbúa margt en þetta er leikur sem við höfum horft svolítið í og ætlum okkur að vinna“ sagði Arnar en viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Arnar um óhefðbundna handboltann í Úrúgvæ Leikur Íslands og Úrúgvæ hefst klukkan 14:30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
HM kvenna í handbolta 2025 Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira