Doncic skoraði 35 stig gegn Dallas Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. nóvember 2025 14:00 Leikmennirnir sem skiptu um félög í einum frægustu leikmannaskiptum í sögu NBA-deildarinnar. Luka Doncic fór til Los Angeles Lakers á meðan Anthony Davis fór til Dallas Mavericks. Flestir telja að Dallas hafi orðið á stór mistök þegar félagið skipti Doncic í burtu. getty/Ronald Martinez Luka Doncic mætti gamla liðinu sínu þegar Los Angeles Lakers sigraði Dallas Mavericks, 129-119, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.
Sem frægt var skipti Dallas Doncic til Lakers í febrúar í staðinn fyrir Anthony Davis. Sá síðarnefndi sneri aftur á völlinn í nótt eftir að hafa misst af fjórtán leikjum vegna kálfameiðsla. Davis fékk góðar móttökur hjá áhorfendum í Los Angeles en hann átti stóran þátt í því að Lakers varð meistari fyrir fimm árum. Davis lék í 28 mínútur, skoraði tólf stig, tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Doncic skoraði hins vegar 35 stig og gaf ellefu stoðsendingar fyrir Lakers. Austin Reaves var stigahæstur hjá liðinu með 38 stig en hann hefur spilað sérlega vel á tímabilinu. Reaves hitti úr tólf af fimmtán skotum sínum í leiknum í nótt. Lakers' duo combines for 73 POINTS in 6th straight win!Luka Dončić: 35 PTS, 11 AST, 4 3PMAustin Reaves: 38 PTS, 8 REB, 6 3PMLAL goes 4-0 in Emirates NBA Cup Group Play & will host SAS in the Quarterfinals on Dec. 13th! pic.twitter.com/EEfTryBzjm— NBA (@NBA) November 29, 2025 Allir í byrjunarliði Lakers skoruðu þrettán stig eða meira. Sigurinn í nótt var sá sjötti í röð hjá liðinu en það er nú öruggt með heimaleik gegn San Antonio Spurs í átta liða úrslitum bikarkeppni NBA-deildarinnar. Lakers er í 2. sæti Vesturdeildarinnar með fjórtán sigra og fjögur töp en Dallas er í fjórtánda og næstneðsta sæti með fimm sigra og fimmtán töp.
NBA Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Enski boltinn Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Körfubolti Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Fótbolti Olli árekstri í miðjum fótboltaleik Fótbolti Besti árangur Íslendings á EM í 24 ár Sport Fleiri fréttir Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna Sjá meira