Vona að Slot haldi áfram: „Kannski gerði hann of vel á síðustu leiktíð“ Sindri Sverrisson skrifar 27. nóvember 2025 11:30 Arne Slot er með Liverpool í neðri helmingi ensku úrvalsdeildarinnar og liðið tapaði svo 4-1 á heimavelli gegn PSV í Meistaradeild Evrópu í gær. Getty/Carl Recine Liverpool virðist vera í miklum vandræðum og spurningar vakna um framtíð Arne Slot. Málið var rætt í Meistaradeildarmörkunum í gærkvöld.
Í Meistaradeildarmörkunum á Sýn Sport í gærkvöld veltu menn því fyrir sér hvort Slot ætti lítið eftir sem stjóri Liverpool, þrátt fyrir að hafa gert liðið að Englandsmeistara með glæsibrag á sinni fyrstu leiktíð. Liðið steinlá, 4-1, gegn PSV á Anfield í gær. „Ég vona ekki. Mér finnst þetta vera góður maður, góður þjálfari og hann náði vel til leikmannanna og allt svoleiðis. En hann er að ganga í gegnum svakalega erfiðan kafla núna – allt liðið. Auðvitað er ekki gaman þegar einhver missir starfið sitt en manni finnst að hann eigi skilið nokkra leiki í viðbót,“ sagði Aron Jóhannsson í Meistaradeildarmörkunum. „En maður þarf að fara að sjá einhverja smá breytingu. Þetta er Liverpool. Þetta eru meistararnir. Kannski gerði hann „of vel“ á síðustu leiktíð, og setti markið of hátt, en þeir eiga ekki að vera í 11. sæti í úrvalsdeildinni,“ sagði Aron en umræðuna má sjá hér að neðan. Klippa: Umræða um stöðu Arne Slot „Í fyrra kaupa þeir enga leikmenn og vinna. Liðið hans Klopp vinnur í fyrra,“ sagði Sigurbjörn Hreiðarsson. „Hann gerði samt liðið hans Klopp betra en Klopp gerði,“ greip Aron inn í og Sigurbjörn tók undir það. „En núna er hann búinn að fikta í liðinu, fá inn menn og annað slíkt. Nú er þetta liðið hans. Bíddu, hvað er í gangi? Það vinnst varla leikur. Fyrstu leikirnir í deildinni, sem unnust, voru nú ekki beint sannfærandi sigrar. En ég er ekki á því að það eigi að reka hann,“ sagði Sigurbjörn.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Sport Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Fleiri fréttir Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Sjá meira