„Þeirra helsti veikleiki“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. nóvember 2025 12:00 Díana Dögg þekkir þýskan handbolta betur en flestar í liðinu. Vísir/Hulda Margrét „Þjóðverjarnir eru rosalega sterkir“ segir Díana Dögg Magnúsdóttir, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, fyrir opnunarleik liðanna. Veikleika má þó finna á þýska liðinu.
Díana hefur spilað í þýsku úrvalsdeildinni undanfarin sex ár og þekkir vel til andstæðingsins. „Ég er búinn að spila við þær allflestar og þær eru ótrúlega sterkar maður á mann. Líkamlega eru þær mjög sterkar og þær vilja keyra, og keyra mikið, en það eru alveg nokkrar stöður hjá þeim varnarlega sem eru brothættar. Við þurfum að nýta okkur það og reyna að keyra á þær þegar þær ná ekki að skipta. Þegar þær spila með línumann vilja þær skipta honum út, þá þurfum við að geta keyrt í bakið á þeim. Það er þeirra helsti veikleiki og svo eru nokkrir bakverðir sem eru kannski ekki bestu varnarmennirnir, en þær eru með hörkulið.“ „Maður á mann…í nánast heilan leik“ Þetta línumannaleysi sem Díana talar um er algengt í þýsku úrvalsdeildinni og hjá bæði kvenna- og karlalandsliði Þýskalands, en hvernig svarar íslenska vörnin því? „Þegar það er verið að spila án línumanns, þá er þetta bara maður á mann fyrir okkur varnarlega. Ég held að við séum flestar vanar því að einhverju leiti, á æfingum og svona, en þetta verður þannig í nánast heilan leik. Það er gaman að takast á við það en við verðum að vera þéttar fyrir.“ Ekki yfir neinu að kvarta í Blomberg Rétt fyrir HM skrifaði Díana undir framlengingu á samningi við þýska liðið Blomberg/Lippe, enda líkar henni lífið í Þýskalandi afar vel. „Mér finnst frábært að vera í Þýskalandi og Blomberg er flottur klúbbur, þarna hjá toppnum og þá hef ég ekki yfir neinu að kvarta“ sagði Díana en viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Díana þekkir Þjóðverjana út og inn
Landslið kvenna í handbolta HM kvenna í handbolta 2025 Mest lesið Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Íslenski boltinn „Þetta er ekki flókið“ Handbolti „Donald Trump er algjör hálfviti“ Sport Rúmlega hálfur milljarður manna sótti um miða á HM Fótbolti Börsungar sluppu fyrir horn Fótbolti Tindastóll - ÍR 101-90 | Stólarnir fóru létt með Breiðhyltinga Körfubolti Spálíkan kippir okkur niður á jörðina fyrir EM Handbolti „Búið að rífa úr honum stælana, egóið og hrokann“ Handbolti „Ég held að þetta verði bara betra héðan í frá“ Körfubolti „Var í raun bara verið að yfirspila okkur“ Körfubolti Fleiri fréttir „Þetta er ekki flókið“ Haukar sneru aftur á sigurbraut gegn Selfossi Alfreð lét sér einn hornamann nægja og stýrði Þjóðverjum til sigurs Spánverjar lögðu Serba og Frakkar völtuðu yfir Tékka Uppgjörið: ÍR - ÍBV 26-29| Eyjakonur tylltu sér á toppinn EM í dag: Sushi og sjónskekkja í Svíþjóð Viktor Gísli brattur: „Bara jákvætt að það sé pressa“ Spálíkan kippir okkur niður á jörðina fyrir EM Eini þýski þjálfarinn á EM þjálfar Ítalíu en hefur mikla trú á Alfreð Ýtt í menn ef þeir eru ekki 110 prósent Lærisveinn Alfreðs sakar mótherja kvöldsins um að spila „anti-handbolta“ „Búið að rífa úr honum stælana, egóið og hrokann“ Virtur handboltasérfræðingur spáir því að EM-bronsið fari til Íslands Stelpurnar okkar fögnuðu stórum sigrum Ungverski línumaðurinn verður ekki með á EM „Allt um þjóðhátíðina í Kristianstad“ Danir voru líka að hugsa um að ráða Dag Sigvaldi ekki hafnað launalækkun Lindgren segir að þetta verði ár Íslands Mætum „Napóleon“ og lærisveinum hans í fyrsta leik á EM í handbolta Meðalaldur íslenska landsliðsins einn sá hæsti á EM Guðmundur svekktur eftir sniðgöngu: „Finnst þetta skammarlegt“ Anton og Jónas dæma fyrsta leik á EM Heimasíða EM í handbolta spáir Íslandi á verðlaunapallinn Árituð landsliðstreyja á uppboði til styrktar Ljósinu Mathias „Gæsling“ kemur til Andabæjar „Hann er góð skytta en ekkert sérstakur hornamaður“ Utan vallar: Betra er frensí en fálæti „Það sem hefur orðið okkur að falli á síðustu mótum“ Fengu símtal frá brjáluðum Gumma Gumm um niðdimma nótt Sjá meira