Helgi Ómars nú Heilsu-Helgi Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 25. nóvember 2025 12:56 Helgi Ómars er margra hatta maður. Liðnir mánuðir hafa verið viðburðarríkir hjá Helga Ómarssyni, áhrifavaldi og ljósmyndara, sem hefur á skömmum tíma lokið þremur sérhæfðum námsleiðum tengdum heilsu og vellíðan. Um síðustu helgi útskrifaðist hann sem jógakennari frá Sólheimum, þar sem hann lærði Yoga Nidra.
Það er þó ekki eini áfanginn sem Helgi hefur náð upp á síðkastið. Í byrjun mánaðarins lauk hann diplómunámi sem saunagusumeistari og í október hlaut hann réttindi sem heilsumarkþjálfi. Hann hefur nú þegar hafið störf sem slíkur hjá heilsusetrinu Eden. Helgi hefur deilt gleðinni með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum.„Mesta gjöf í heimi að eyða langri helgi með mömmu í Sólheimum og útskrifast saman sem Yoga Nidra kennarar,“ skrifaði hann og deildi myndum frá jógakennsluútskriftinni. View this post on Instagram A post shared by Helgi Omarsson (@helgiomarsson) „Helgi, núna sánagusumeistari! Hver ætlar að koma í sánagus? Óendanlega þakklátur fyrir bestu tíma með stórkostlegu fólki,“ sagði hann í annarri færslu þar sem mátti sjá hann með öðrum sem útskrifuðust úr sama námi. Þar á meðal var Gummi Emil einkaþjálfari. View this post on Instagram A post shared by Helgi Omarsson (@helgiomarsson) Ár stórra breytinga Árið hefur óneitanlega verið ár breytinga hjá Helga. Ekki nóg með að hann hafi útskrifast með þrjár nýjar gráður, þá flutti hann einnig úr miðborg Reykjavíkur yfir í Kópavog. Hann og unnusti hans, Pétur Björgvin Sveinsson, festu nýverið kaup á fallegri hæð í Suðurhlíðum Kópavogs eftir nokkur ár í miðborginni. Helgi hélt lengi úti hlaðvarpinu Helgaspjallið, sem hóf göngu sína árið 2018. Í upphafi árs tók hann þá ákvörðun að leggja það niður og lýsti henni sem stóru, en réttu skrefi. „Ég hafði ítrekað fundið fyrir kulnunareinkennum og mér fannst ég klessa á vegg aftur og aftur. Svo, eftir að ég slakaði örlítið á, setti ég aftur í fimmta gír og keyrði af stað í ný verkefni. Eins og sannur tvíburi var ég annaðhvort með of marga bolta á lofti eða í ákveðinni örmögnun,“ sagði Helgi í samtali við Vísi í janúar.
Heilsa Samfélagsmiðlar Jóga Mest lesið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Lífið Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Gagnrýni Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu Lífið samstarf Sól sló í gegn á tískuviku í London Tíska og hönnun Edda með tárin í augunum Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Fleiri fréttir „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu Sjá meira