Veikindi í landsliðshópnum: „Þær segja að þetta sé mér að kenna“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. nóvember 2025 23:15 Þórey Anna er smitberi samkvæmt liðsfélögum sínum í landsliðinu. sýn / skjáskot Veikindi hafa herjað á íslenska landsliðið í handbolta, í undirbúningi liðsins fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í næstu viku.
Klippa: Þórey Anna smitaði liðsfélagana í landsliðinu „Það er eitthvað búið að vera að ganga hérna innan liðsins en sem betur fer eru allir að ná sér, hægt og rólega, og vonandi verða allir frískir þegar mótið byrjar“ sagði Þórey Anna Ásgeirsdóttir, landsliðskona og leikmaður Vals. Er þetta ekkert að trufla þig? spurði Valur Páll Eiríksson þá. „Nei, ég held að ég hafi byrjað þetta“ sagði Þórey en liðsfélagar hennar í Val hafa einnig veikst. „Þær segja að þetta sé mér að kenna“ sagði Þórey létt í bragði og hafði litlar áhyggjur af sinni heilsu fyrir HM. „Ég er bara orðin mjög góð.“ Hafa gott af góðum æfingaleik HM hefst í næstu viku og Ísland spilar opnunarleik mótsins gegn heimaliði Þýskalands þann 26. nóvember en fyrst fer liðið í æfingabúðir til Færeyja yfir helgina. „Þetta verður góður æfingaleikur, ég myndi segja að við værum mjög svipuð lið, þannig að þetta verður hörkuleikur og við höfum bara gott af því fyrir þetta mót.“ Markmiðið á HM ekkert leyndarmál Þórey Anna fór ekki á EM í fyrra en var valin aftur í hópinn fyrir HM. Hún segir það mikinn heiður og setur stefnuna á að komast áfram í milliriðlana. „Maður er í þessu til að vera á þessum stórmótum og vonandi er þetta eitthvað sem getur orðið hefð hjá íslenska kvennalandsliðinu í handbolta. Við erum með okkar markmið og það er ekkert leyndarmál, að fara í milliriðla er okkar helsta markmið á þessu móti.“
Landslið kvenna í handbolta HM kvenna í handbolta 2025 Mest lesið Lofsamar starfið á Íslandi og segir það vanmetið: „Að mínu mati ótrúlegt“ Handbolti Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Íslenski boltinn Ekki innistæða fyrir því að vera kokhraustir Handbolti Stjörnuleikmaður fékk borgaðar tugi milljóna fyrir að spila illa Körfubolti „Á eftir bolta kemur barn“ Íslenski boltinn Svona er leiðin að verðlaunum: Ísland sleppur við allra bestu liðin Handbolti Kenna Donald Trump og falli Bandaríkjadals um sjö milljarða tap Fótbolti Í lífstíðarbann fyrir þessa óhuggulegu tæklingu Fótbolti „Þetta er ekki flókið“ Handbolti „Donald Trump er algjör hálfviti“ Sport Fleiri fréttir Þjálfari Ítalíu smeykur við Gísla og Ómar Svona er leiðin að verðlaunum: Ísland sleppur við allra bestu liðin „Geri mér vonir um að þetta verði mótið þar sem allt smellur“ Ekki innistæða fyrir því að vera kokhraustir Lofsamar starfið á Íslandi og segir það vanmetið: „Að mínu mati ótrúlegt“ „Þetta er ekki flókið“ Haukar sneru aftur á sigurbraut gegn Selfossi Alfreð lét sér einn hornamann nægja og stýrði Þjóðverjum til sigurs Spánverjar lögðu Serba og Frakkar völtuðu yfir Tékka Uppgjörið: ÍR - ÍBV 26-29| Eyjakonur tylltu sér á toppinn EM í dag: Sushi og sjónskekkja í Svíþjóð Viktor Gísli brattur: „Bara jákvætt að það sé pressa“ Spálíkan kippir okkur niður á jörðina fyrir EM Eini þýski þjálfarinn á EM þjálfar Ítalíu en hefur mikla trú á Alfreð Ýtt í menn ef þeir eru ekki 110 prósent Lærisveinn Alfreðs sakar mótherja kvöldsins um að spila „anti-handbolta“ „Búið að rífa úr honum stælana, egóið og hrokann“ Virtur handboltasérfræðingur spáir því að EM-bronsið fari til Íslands Stelpurnar okkar fögnuðu stórum sigrum Ungverski línumaðurinn verður ekki með á EM „Allt um þjóðhátíðina í Kristianstad“ Danir voru líka að hugsa um að ráða Dag Sigvaldi ekki hafnað launalækkun Lindgren segir að þetta verði ár Íslands Mætum „Napóleon“ og lærisveinum hans í fyrsta leik á EM í handbolta Meðalaldur íslenska landsliðsins einn sá hæsti á EM Guðmundur svekktur eftir sniðgöngu: „Finnst þetta skammarlegt“ Anton og Jónas dæma fyrsta leik á EM Heimasíða EM í handbolta spáir Íslandi á verðlaunapallinn Árituð landsliðstreyja á uppboði til styrktar Ljósinu Sjá meira