Michael Jordan gefur meira en milljarð króna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2025 16:02 Michael Jordan hætti að spila fyrir rúmum tveimur áratugum en er samt enn meðal tekjuhæstu íþróttamanna heims. Getty/ Jacob Kupferman Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan hefur ákveðið að styrkja læknamiðstöð í Norður-Karólínu um tíu milljónir Bandaríkjadala.
Það gerir meira en 1,2 milljarða íslenskra króna og er því engin smáupphæð Jordan vill með þessu heiðra móður sína, Deloris, en eftir gjöfina mun læknamiðstöðin nefna taugavísindastofnun sína eftir Deloris Jordan. „Móðir mín kenndi mér mikilvægi samkenndar og samfélags og ég get ekki hugsað mér betri leið til að heiðra hana en með því að hjálpa til við að tryggja að þeir sem eru þurfandi geti fengið fullkomnustu taugalækningaþjónustu sem völ er á,“ sagði Michael Jordan um gjöf sína. Peningarnir munu styðja við starf móður hans á sviði heilsu og vellíðunar, sérstaklega með því að gera sérfræðinga, tækni og umönnun aðgengilegri fyrir sjúklinga sem glíma við heilablóðfall, mænumeðferð, Alzheimer, Parkinson og önnur heilsufarsvandamál. Deloris Jordan, stofnandi og forseti James R. Jordan-stofnunarinnar og alþjóðlegrar stofnunar með sama nafni, hefur haft umsjón með verkefnum í Bandaríkjunum og Afríku. Hún sagði að það væri auðmjúk reynsla að taka þátt í að færa fleirum í Norður-Karólínu hágæðaþjónustu. Deloris Jordan er 84 ára gömul og hefur verið forseti James R. Jordan-stofnunarinnar í tvo áratugi. Michael Jordan hefur sagt frá því að hann ætlaði að semja við Adidas á sínum tíma en það var móðir hans sem fékk hann til að fara og hlusta á tilboð Nike. Þeir buðu honum tilboð sem hann gat ekki hafnað og flestir þekkja framhaldið. Jordan er enn í dag að græða yfir þrjátíu milljarða á ári á þessum samningi þar sem hann fær um fimm prósent af söluþóknun skóna hans. View this post on Instagram A post shared by @courtsidebuzzig
NBA Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Fótbolti Berglind fékk Gullboltann Körfubolti Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Fleiri fréttir Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna Sjá meira