Markasúpa og Magdeburg enn með fullt hús í Meistaradeildinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. nóvember 2025 19:38 Gísli Þorgeir Kristjánsson í leiknum gegn Zagreb í kvöld. Hann skoraði tvö mörk fyrir Magdeburg. getty/Igor Kralj Íslendingaliðið Magdeburg er áfram með fullt hús stiga á toppi B-riðils Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir sigur á Zagreb í miklum markaleik í kvöld, 35-43.
Magdeburg, sem er Evrópumeistari, vann fyrstu sjö leiki sína í riðlakeppninni og hélt uppteknum hætti í Zagreb í kvöld. Mörkunum hreinlega rigndi inn og voru 78 þegar uppi var staðið. Spennan var hins vegar ekki mikil því Magdeburg var allan tímann með frumkvæðið. Átta mörkum munaði á liðunum í hálfleik, 14-22, og sami munur var á þeim þegar yfir lauk, 35-43. Matthias Musche, sem er nýkominn til baka eftir meiðsli, fór mikinn í vinstra horninu hjá Magdeburg og gerði ellefu mörk. Tim Hornke skoraði sjö úr hægra horninu. Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg, Gísli Þorgeir Kristjánsson tvö og Elvar Örn Jónsson eitt. Bjarki Már Elísson lék ekki með Veszprém sem sigraði Kolstad, 42-34. Sigvaldi Guðjónsson var heldur ekki með Kolstad. Benedikt Gunnar Óskarsson var ekki á meðal markaskorara hjá norska liðinu en Sigurjón Guðmundsson varði tvö skot í marki þess. Veszprém er í 3. sæti A-riðils með tíu stig en Kolstad með tvö stig í 7. sætinu.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ Íslenski boltinn Fann ekkert atvinnumannalið í Þorlákshöfn: „Þeir hefðu getað tapað svona 30-0“ Fótbolti „Sé ekki að almannahagsmunir séu ríkari hér en í Danmörku eða Svíþjóð“ Sport Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Íslenski boltinn David James þjálfar markverði Vals Íslenski boltinn Breytti aðeins til og bætti heimsmetið í fimmtánda sinn Sport Ótrúleg sigurganga Klæbo endaði með árekstri og spítalaferð Sport „Allir hjá Manchester United elska hann“ Enski boltinn Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Fótbolti Hættir í NFL til að fara að bjarga mannslífum Sport Fleiri fréttir Guðmundur og Ísak að missa af úrslitakeppninni Tvisvar markakóngur fyrir tvítugt „Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt“ „Þórsarinn er svo geggjaður“ Þór - KA 31-31 | Allt jafnt í æsispennandi Akureyrarslag FH - ÍR 34-28 | FH sendi ÍR niður um deild „Þú ert að biðja mig um að finna eitt stig“ Valur sótti deildarmeistaratitil til Eyja Orri fagnaði dramatískum sigri og fer til Póllands Íslendingaliðið lauk leik með tapi en Bjarki Már mætir GOG eða PSG Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Viktor Gísli frábær og Barca endaði á toppnum „Fannst tilvalið að vera með í þessu“ Björgvin ekki af baki dottinn: „Bara eins lengi og mín er þörf“ Íslendingaliðið tapaði stórt en fer í umspil Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Ótrúleg dramatík í Íslendingaslag þar sem örlögin réðust „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Samningaviðræður Snorra við HSÍ standa enn yfir: „Ég er alltaf bjartsýnn“ „Ég veit ekki hvaða gjöf þú ert að tala um“ Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von KA 25-30 FH | Hafnfirðingar tryggðu heimavallarrétt Ýmir og félagar með tvo sigra í röð í fyrsta sinn í fjóra mánuði Fá Egypta í Höllina fyrir HM og heimsækja þá líka Ómar á fæðingardeild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM Sjáðu markasýningu Viggós í dag Á góðri leið með því að tvöfalda framlagið sitt frá því í fyrra Sigurjón með 61 prósent markvörslu í norsku deildinni Haukur þriðji tíu marka maður Íslands í þýsku deildinni í dag Sjá meira