Segir engan óhultan ef gervigreindarbólan springur Kjartan Kjartansson skrifar 18. nóvember 2025 10:45 Sundar Pichai, forstjóri Alphabet, varar við áihrifum þess ef gervigreindarbólan springur. Tæknin sem slík sé þrátt fyrir það þess virði að þróa. Pichai telur hana þá byltingarkenndustu sem mannkynið hefur unnið að. Vísir/EPA Forstjóri móðurfélags tæknirisans Google segir ekkert fyrirtæki sleppi óskaðað ef gervigreindarbólan sem hefur þanist út springur. Hann telur ýmislegt skrýtið í kýrhausnum í gervigreindarfárinu sem geisar.
Fjöldi sérfræðinga hefur bent á að blikur kunni að vera á lofti í heimshagkerfinu vegna gervigreindarbólunnar. Springi hún gæti það orðið meira högg en í netbólan á árunum fyrir aldamót og undirmálslánabólann sem varð kveikjan að efnahagshruninu 2008. Þannig hefur verið bent á að útlit sé fyrir að tekjur OpenAI, eiganda ChatGPT spjallmennisins, verði innan við þúsundasti hluti af þeim 1,4 billjónum dollara sem fjárfest er í fyrirtækinu um þessar mundir. Sundar Pinchai, forstjóri Alphabet, móðurfélags Google, segir að sitt fyrirtæki geti staðið af sér storminn ef loftið sleppur úr gervigreindarblöðrunni. Það sleppi þó ekki við afleiðingarnar. „Ég held að ekkert fyrirtæki verði ónæmt, þar á meðal okkar,“ segir hann í viðtali við breska ríkisútvarpið. Enginn efist um netið þótt offjárfest hafi verið í því Pichai lýsir uppgangi gervigreindar og fjárfestingar í henni sem ótrúlegu tímabili en að dæmið gangi ekki að öllu leyti upp. Iðnaðurinn hafi tilhneigingu til þess að prjóna yfir sig á stundum sem þessari. „Við getum litið á internetið núna. Það var klárlega mikil offjárfesting en ekkert okkar efaðist um að internetið hefði mikla þýðingu. Ég býst við að sama verði uppi á teningnum með gervigreindina. Þannig að ég tel að það sé bæði skynsemi og óskynsemi að hluta til á stundum sem þessari,“ segir forstjórinn. Tæknin sjálf er sú áhrifamesta sem mannkynið hefur þróað, að mati Pichai. Hún eigi eftir að valda samfélagslegri röskun, útrýma vissum störfum en einnig hafa ný tækifæri í för með sér. „Það skiptir ekki máli hvort þú viljir verða kennari eða læknir. Allar þessar starfsgreinar verða til en fólkið sem stendur sig vel í þeim verður fólk sem lærir á þessi tól,“ segir forstjórinn. Hægir á loftslagsmarkmiðum tæknirisans Alphabet tekur fullan þátt í gervigreindarbólunni. Fyrirtækið þróar nú sérstakar tölvuflögur fyrir gervigreind sem eiga að keppa við tæknifyrirtækið Nvidia sem malar nú gull. Gervigreindin er gríðarlega orkufrek. Alþjóðaorkumálastofnunin áætlar að um 1,5 prósent rafmagnsnotkunar í heiminum í fyrra hafi verið vegna gagnavera sem hýsa hana. Pichai viðurkennir að loftslagsmarkmið Alphabet náist líklega ekki af þessum sökum. Það stefni engu að síður að því að ná kolefnishlutleysi árið 2030 með því að fjárfesta í endurnýjanlegum orkugjöfum.
Gervigreind Google Efnahagsmál Tækni Mest lesið Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent S4S-veldið tekur við Lindex Viðskipti innlent Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Neytendur Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Viðskipti innlent Fleiri fréttir Í hóp fimm milljarðamæringa úr tónlistarsenunni Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Ekkert verður úr TikTok-banni með nýjum samningi Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Höfnuðu yfirtökutilboði Paramount Messenger-forritið heyrir sögunni til Lofar að koma böndum á CNN Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Sjá meira