Töluvert bjartviðri í dag en sums staðar þokuloft Lovísa Arnardóttir skrifar 16. nóvember 2025 07:36 Smálægð er á leið til landsins og gæti verið hvasst á morgun, mánudag. Vísir/Vilhelm Hæðir suður af landinu og yfir Grænlandi beina hægum vestlægum áttum yfir landið næstu daga. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að það verði töluvert bjartviðri en sums staðar verður þokuloft við suður- og vesturströndina.
Aðfaranótt mánudags byrjar smálægð að myndast suður af landinu sem getur valdið allhvössum norðaustlægum vindstrengjum við Suðausturströndina á mánudaginn. Þá má einnig búast við snjókomu eða slyddu norðan- og austantil, en skúrum víða við Suður- og Vesturströndina segir í hugleiðingum. Eftir það, á þriðjudeginum og miðvikudeginum, taka við vestlægar eða breytilegar áttir og yfirleitt hægur vindur og bjart í flestum landshlutum, en kólnar heldur, einkum inn til landsins. Á fimmtudeginum er útlit fyrir suðlægar áttir þegar lægð nálgast okkur úr vestri, með allhvössum vindstrengjum sunnan- og vestanlands. Hlýnar í veðri. Víða er hálka eða hálkublettir samkvæmt vef Vegagerðar. Nánar hér og nánar hér um veður á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Norðan og norðaustan 5-13 m/s, en vestlægari syðst. Allhvasst suðaustantil um kvöldið. Snjókoma eða slydda á austanverðu landinu framan af degi, annars víða él, en léttir til á vesturhluta landsins seinnipartinn. Hiti nærri frostmarki að deginum, en kólnar síðan heldur. Á þriðjudag: Norðlæg átt, 8-15 m/s og dálítil él austanlands, en yfirleitt mun hægara og bjart í öðrum landshlutum. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins. Á miðvikudag: Hæg breytileg átt, víða bjartviðri og talsvert frost, en dálítil él um norðanvert landið. Þykknar smám saman upp á vestanverðu landinu og hlýnar þar. Á fimmtudag: Útlit fyrir sunnan- og suðaustanstrekking með snjókomu eða slyddu, en síðar rigningu víða um land, en einkum þó syðra. Hlýnandi veður. Á föstudag: Útlit fyrir suðlægar eða breytilegar áttir, víða dálítil rigning eða slydda, en síðar snjókomu og heldur kólnandi veður. Á laugardag: Útlit fyrir austlægar eða breytilegar áttir. Bjart með köflum og víða snjókoma eða él, einkum suðaustantil. Hiti 0 til 4 stig við ströndina, en frost allt að 10 stigum inn til landsins.
Veður Færð á vegum Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira