„Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. nóvember 2025 09:02 Erling Haaland átti ekki góðan fyrri hálfeik en bætti fyrir það í þeim seinni. Getty/Joern Pollex Erling Braut Haaland og félagar í norska landsliðinu eru komnir inn á HM í fótbolta næsta sumar því aðeins tölfræðiútreikningur kemur í veg fyrir það.
Noregur vann 4-1 sigur á Eistlandi í gær og hefur unnið alla sjö leiki sína í riðlinum. Ítalir geta reyndar náð Norðmönnum að stigum en þurfa að vinna upp nítján marka mun í markatölu sem er að öllu eðlilegu ómögulegt. Það gekk þó illa framan af hjá þeim norsku á móti Eistunum og það var enn markalaust í hálfleik. Norska liðið kom grimmt út í seinni hálfleikinn og enginn var grimmari en stórstjarnan Haaland. Kristoffer Lökberg hjá NRK var með einkunnagjöf eftir leikinn og gaf Haaland sjö. Rökstuðningur hans var þó athyglisverður. „Ósýnilegur þar til hann reis til himins og skallaði boltann vel niður til Wolfe sem fékk gott færi á 19. mínútu. Hvarf svo aftur alveg úr leiknum þar til hann fékk annað skallafæri rétt fyrir hlé,“ skrifaði Lökberg. „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum eftir hlé með augnaráð sem hefði getað drepið. Var, ásamt liðsfélögum sínum, mun ákveðnari, hreyfanlegri og sóknarsinnaðri eftir hlé,“ skrifaði Lökberg. „Hann sýndi heimsklassa sinn þegar hann reis til himins og skallaði boltann í netið og kom stöðunni í 3-0. Hann skoraði aftur með verri fætinum aðeins nokkrum mínútum síðar. Frábær sending milli fóta á varnarmanni sem hefði getað orðið stoðsending á Sørloth á 67. mínútu,“ skrifaði Lökberg. Mörkin tvö þýða að Haaland er kominn með fjórtán mörk í sjö leikjum Norðmanna í þessari undankeppni eða tvö mörk að meðaltali í leik. Hann var með tvöfalt fleiri mörk en næsti maður í evrópsku undankeppninni þegar Haaland gekk af velli í gærkvöldi. Mörkin fyrir norska landsliðið eru orðin 53 og það bara í 47 landsleikjum eða 1,13 að meðaltali í leik.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Fótbolti Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Fótbolti Fleiri fréttir Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí „Var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég“ Sjá meira