Sarkozy laus úr fangelsi Eiður Þór Árnason skrifar 10. nóvember 2025 15:26 Nicolas Sarkozy, fyrrverandi Frakklandsforseti, sést hér yfirgefa heimili sitt þann 21. október til að hefja fangelsisdóm sinn í La Santé-fangelsinu í París. AP/Thibault Camus Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseta Frakklands, var í dag sleppt lausum úr fangelsi eftir niðurstöðu áfrýjunardómstóls. Innan við þrjár vikur eru liðnar frá því hann hóf afplánun fimm ára fangelsisdóms fyrir að hafa tekið við milljónum evra frá fyrrverandi einræðisherra Líbíu fyrir kosningabaráttu sína árið 2007.
Skömmu eftir að honum var sleppt úr La Santé-fangelsinu í París sást hann koma á heimili sitt í vesturhluta borgarinnar. Hinum sjötuga Sarkozy er óheimilt að yfirgefa franskt landsvæði og eiga í samskiptum við annað lykilfólk málsins á borð við vitni og meðákærða á meðan málið bíður frekari meðferðar. Gert er ráð fyrir að áfrýjunarmeðferð fari fram síðar og þá mögulega næsta vor. AP-fréttaveitan greinir frá þessu. Eftir sakfellingu Sarkozy þann 25. september síðastliðinn varð hann fyrsti fyrrverandi nútímaþjóðhöfðingi Frakklands til að verða settur bak við lás og slá. Hann neitar sök en var fangelsaður þann 21. október á meðan hann beið áfrýjunar málsins. Hann sóttist strax eftir að verða sleppt fyrr úr haldi og féllst áfrýjunardómstóll á þá beiðni í dag. Verið mjög erfið lífsreynsla Við réttarhöldin í dag hélt Sarkozy því fram að hann hafi ekki farið á svig við lög þegar kom að fjármögnun kosningabaráttunnar og uppfyllt allar lagalegar kröfur. „Ég hafði aldrei ímyndað mér að ég myndi upplifa fangelsi 70 ára gamall,“ sagði hann og bætti við að reynslan hafi verið mjög erfið. Á sama tíma vottaði Sarkozy starfsfólki fangelsisins virðingu sína og sagði það hafa hjálpað honum í gegnum „þessa martröð.“ Eiginkona Sarkozy, ofurfyrirsætan og tónlistarkonan Carla Bruni-Sarkozy, og tveir synir hans voru viðstödd réttarhöldin í dómshúsinu í París. Nicolas Sarkozy yfirgefur bifreið sína fyrir utan heimili sitt eftir að hafa verið sleppt úr haldi í dag. AP/Christophe Ena Jafnframt sagði forsetinn fyrrverandi að hann hefði aldrei sóst eftir fjármunum frá Moammar Gaddafi, leiðtoga Líbíu. „Ég mun aldrei viðurkenna eitthvað sem ég gerði ekki.“ Frönsk lög kveða á um að almenna reglan sé sú að sakborningar fái lausn á meðan áfrýjun stendur, að sögn AP. Á sama tíma sé varðhaldi beitt ef sakborningar eru taldir hættulegir, líklegir til að flýja land, eða í þeim tilgangi að vernda sönnunargögn eða koma í veg fyrir að vitni verði beitt þrýstingi. Áður dæmdur fyrir spillingu Dómstólinn bannaði Sarkozy sérstaklega að vera í sambandi við franska dómsmálaráðherrann Gérald Darmanin. Þetta telst sjaldgjæft en Darmanin er sagður hafa litið á Sarkozy sem læriföður sinn áður en hann gekk aftur til liðs við miðjuflokk Emmanuel Macron, núverandi Frakklandsforseta, og varð dómsmálaráðherra. Darmanin heimsótti Sarkozy í fangelsið í síðasta mánuði og gagnrýndu sumir franskir dómarar þessa ákvörðun hans, að sögn AP-fréttaveitunnar. Sarkozy var forseti Frakklands á árunum 2007 til 2012. Hann stendur frammi fyrir ólíkum dómsmálum, þar á meðal úrskurði hæstaréttar Frakklands frá 26. nóvember um ólöglega fjármögnun á misheppnuðu endurkjörsframboði hans árið 2012 og áframhaldandi rannsókn á meintum afskiptum af vitnisburði í Líbíumálinu. Árið 2023 var hann fundinn sekur um spillingu fyrir að reyna að múta dómara í skiptum fyrir upplýsingar um dómsmál sem hann var tengdur. Hæstiréttur Frakklands staðfesti síðar dóminn. Fréttin hefur verið uppfærð.
Frakkland Tengdar fréttir Sarkozy hefur afplánun í næstu viku Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseta Frakklands, hefur verið gert að gefa sig fram við La Santé fangelsið í suðurhluta Parísar þann 21. október næstkomandi, til að hefja afplánun. 14. október 2025 07:27 Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakklands, hefur verið sakfelldur fyrir að taka ólöglega við milljónum evra frá Muammar Gaddafi, fyrrverandi einræðisherra Líbíu, á árum áður. Peningarnir rötuðu i kosningasjóði Sarkozy fyrir forsetakosningar. 25. september 2025 10:26 Sagður hafa þegið töskur fullar fjár frá Gaddafi Réttarhöld hefjast í dag yfir Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseta Frakklands, en hann er sakaður um að hafa þegið milljónir evra í ólögleg kosningaframlög frá ríkisstjórn Muammar Gaddafi, þáverandi leiðtoga Líbíu, árið 2007. 6. janúar 2025 07:03 Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira
Sarkozy hefur afplánun í næstu viku Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseta Frakklands, hefur verið gert að gefa sig fram við La Santé fangelsið í suðurhluta Parísar þann 21. október næstkomandi, til að hefja afplánun. 14. október 2025 07:27
Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakklands, hefur verið sakfelldur fyrir að taka ólöglega við milljónum evra frá Muammar Gaddafi, fyrrverandi einræðisherra Líbíu, á árum áður. Peningarnir rötuðu i kosningasjóði Sarkozy fyrir forsetakosningar. 25. september 2025 10:26
Sagður hafa þegið töskur fullar fjár frá Gaddafi Réttarhöld hefjast í dag yfir Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseta Frakklands, en hann er sakaður um að hafa þegið milljónir evra í ólögleg kosningaframlög frá ríkisstjórn Muammar Gaddafi, þáverandi leiðtoga Líbíu, árið 2007. 6. janúar 2025 07:03