Körfubolti

„Er ekki al­veg viss um hvar hann hefur lært körfu­bolta“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Julio De Assis fékk á baukinn í Bónus Körfuboltakvöldi.
Julio De Assis fékk á baukinn í Bónus Körfuboltakvöldi. vísir/anton

Í Bónus Körfuboltakvöldi á föstudaginn hélt Teitur Örlygsson langa tölu um annmarka Julio De Assis, leikmanns Njarðvíkur. Hann verður seint talinn mikill aðdáandi leikmannsins.

Julio átti ekki sinn besta leik þegar Njarðvík laut í lægra haldi fyrir Stjörnunni, 101-105, á heimavelli í 6. umferð Bónus deildar karla á föstudaginn.

Teitur var ekki hrifinn af því sem hann sá til Julios í leiknum gegn Stjörnunni, hvorki í vörn né sókn.

„Hann var gjörsamlega hörmulegur. Þegar ég fylgist með honum er ég ekki alveg viss hvar hann hefur lært körfubolta. Því mér finnst þessi körfuboltagreind vera hörmuleg,“ sagði Teitur.

„Það sem fer meira í taugarnar á mér er hvað hann er ofboðslega linur. Það er eins og hann sé hræddur við alla snertingu og þótt hann sé jafnvel að dekka minni menn komast allir með hann þangað sem þeir vilja. Ég er alls ekki hrifinn af þessum leikmanni og vil að Njarðvík taki ákvörðun, helst sem fyrst. Það kæmi mér ekkert á óvart að Njarðvík væri að skoða aðra leikmenn því hann passar engan veginn inn í þetta lið.“

Klippa: Bónus Körfuboltakvöld - umræða um Julio De Assis

Benedikt Guðmundsson var á sama máli og Teitur varðandi spilamennsku Julios gegn Stjörnunni.

„Þessi frammistaða hans var með því lakara sem maður hefur séð á þessu tímabili. Það hefði verið hægt að sýna miklu fleiri klippur af honum varnarlega. Ef þú myndir spyrja mig persónulega, hvað ert þú að fara að gera Benni, myndi ég segja að ég væri að fara að skipta honum,“ sagði Benedikt.

Ekki góður í neinu

„Ég veit ekki almennilega hverjir hans styrkleikar eru. Hann er íþróttamaður,“ bætti Benedikt við.

„Hann er ekki góður í neinu. Ég skal bara segja þér það,“ skaut Teitur inn í.

„Hann kann leikinn ekki vel. Hann er ekki að mata menn og gera þá betri. Hann treður og hann getur sett opna þrista og eitthvað svona,“ sagði Benedikt.

Umræðuna úr Bónus Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun

Serbneski körfuboltamaðurinn Ilija Dokovic, sem er nýgenginn í raðir ÍA, er ekki í sínu besta formi eins og sást bersýnilega í leiknum gegn Val.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×