Sjáðu Messi skjóta Inter Miami áfram í fyrsta sinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. nóvember 2025 09:29 Lionel Messi skoraði tvö mörk og lagði upp eitt þegar Inter Miami rúllaði yfir Nashville. epa/CRISTOBAL HERRERA-ULASHKEVICH Lionel Messi sýndi allar sínar bestu hliðar þegar Inter Miami sigraði Nashville, 4-0. Þetta var í fyrsta sinn í sögunni sem liðið vinnur einvígi í úrslitakeppni MLS-deildarinnar.
Staðan í einvígi Inter Miami og Nashville var jöfn, 1-1, fyrir leikinn í nótt. Ljóst var að sigurvegarinn myndi tryggja sér sæti í næstu umferð. Messi var í miklu stuði í gær og kom Inter Miami yfir á 10. mínútu með skoti fyrir utan vítateig. Sex mínútum fyrir hálfleik tvöfaldaði Messi forskot Inter Miami. Mateo Silvetti komst þá einn í gegnum vörn Nashville en var óeigingjarn og lagði boltann til hliðar á Messi sem skoraði. Tadeo Allendi bætti svo tveimur mörkum við í seinni hálfleik. Messi lagði það seinna upp og kom því með beinum hætti að þremur af fjórum mörkum Inter Miami í leiknum. Allt það helsta úr leiknum má sjá hér fyrir ofan. Messi skoraði samtals fimm mörk í leikjunum þremur gegn Nashville og hefur alls skorað tólf mörk í sjö leikjum gegn liðinu síðan hann kom til Inter Miami fyrir rúmum tveimur árum. Í næstu umferð, undanúrslitum Austurdeildarinnar, mætir Inter Miami Cincinatti.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Qarabag - Vestri | Fyrsti Evrópuleikur Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Handbolti Fleiri fréttir Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Víkingur R. - ÍBV | Leita fyrsta sigursins í tvo mánuði Newcastle yngir upp á sumri breytinga Qarabag - Vestri | Fyrsti Evrópuleikur Ísfirðinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Ætlar að gefa frí ef England vinnur HM „Fá sér hamborgara og þrjú stig í kvöldmat“ Ingibjörg barnshafandi Svarar ásökunum Egypta um svindl: „Ekki hægt að hafa áhrif á dómgæsluna“ „Horfa á okkur sem sveitalið frá Íslandi“ Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Þátturinn um N1-mótið: „Ég er low-key cooking í marki“ Ofurtölvan telur 16,5 prósenta líkur á að fótboltinn komi heim Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Jón Þór ætlar að snúa gengi Stjörnunnar við Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Sjá meira