Óvænt úrslit í Meistaradeildinni Valur Páll Eiríksson skrifar 5. nóvember 2025 19:44 Garnacho tryggði Chelsea stig. Darren Walsh/Chelsea FC via Getty Images Chelsea sótti aðeins stig til Aserbaísjan í Meistaradeild Evrópu og Pafos frá Kýpur vann sinn fyrsta sigur í keppninni í kvöld.
Brasilíska ungstirnið Estevao kom Chelsea í forystu eftir um stundarfjórðungsleik eftir stoðsendingu landa hans Andrey Santos. Útlit var fyrir þægilegan sigur gestanna en Aserarnir voru ekki á þeim buxunum. Brassinn Leandro Andrade jafnaði fyrir Qarabag eftir tæplega hálftímaleik og tíu mínútum síðar fékk Qarabag víti þegar Jorrel Hato handlék knöttinn innan teigs. Svartfellingurinn Marko Jankovic skoraði af punktinum til að veita Qarabag 2-1 forystu í hálfleik. Alejandro Garnacho var einn þriggja leikmanna sem Enzo Maresca, þjálfari Chelsea, skipti inn í hálfleik og hann skoraði á 53. mínútu til að jafna leikinn á ný. Þrátt fyrir mikinn sóknarþunga fann Chelsea ekki sigurmark og 2-2 úrslit leiksins. Chelsea og Qarabag eru jöfn að stigum með sjö stig eftir fjóra leiki í keppninni. Á Kýpur skoraði Hollendingurinn Derrick Luckassen eina mark leiksins í sögulegum sigri Pafos á Villarreal frá Spáni. Um er að ræða fyrsta Meistaradeildarsigur Pafos í sögunni, sé forkeppnin undantalin. Pafos er með fimm stig eftir sigurinn en Villarreal aðeins með eitt eftir fjóra leiki. Fjöldi leikja er á dagskrá í keppninni klukkan 20:00 og eru þeir sýndir á rásum Sýnar Sport. Öllum er fylgt eftir samtímis af Gumma Ben, Kjartani Henry og Albert Brynjari í Meistaradeildarmessunni á Sýn Sport klukkan 20:00.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Enski boltinn Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Fleiri fréttir Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Sjá meira