„Versta martröð Trumps“ kjörin borgarstjóri New York Atli Ísleifsson skrifar 5. nóvember 2025 06:23 Zohran Mamdani ávarpaði meðal annars Donald Trump Bandaríkjaforseta í ávarpi sínu í nótt. EPA Demókratinn Zohran Mamdani var í nótt kjörinn nýr borgarstjóri New York-borgar og verður hann fyrsti músliminn til að taka við borgarstjórastólnum í þessari stærstu borg Bandaríkjanna. Hann hefur lýst sjálfum sér sem lýðræðislegum sósíalista sem og „verstu martröð Trumps“ Bandaríkjaforseta.
Demókratar unnu sigra víða um Bandaríkjunum í gær. Þannig tryggðu frambjóðendur þeirra sér einnig sigra í ríkisstjórakosningum bæði í Virginíu og New Jersey. Þegar búið var að telja rúmlega 90 prósent atkvæða í borgarstjórakosningunum í New York var Mamdani með 50,4 prósent atkvæða og Andrew Coumo, sem bauð sig fram sem óháður en naut meðal annars stuðnings Trumps og auðjöfursins Elon Musk, 41,5 prósent. Cuomo. Frambjóðandi Repúblikana, Curtis Sliwa, hlaut mun minna fylgi. New York verður ljósið Hinn 34 ára Mamdani, sem var nær óþekktur fyrir fáeinum mánuðum, ávarpaði stuðningsmenn sína eftir að fyrir lá að hann yrði nýr borgarstjóri New York, sá 111. í röðinni. „Á þessum tíma pólitísks myrkurs, þá verður New York ljósið.“ Hann sagði kjósendur hafa veitt sér skýrt umboð til breytinga. Hann sagði sömuleiðis að hann gerði sér grein fyrir því að margir óttuðust að 33 ára maður myndi stýra New York-borg. „Ég hef ákveðið að bregðast við þessu. Á morgun verð ég 34 ára.“ Stuðningsmenn Zohran Mamdami fögnuðu í nótt. EPA Mamdani beindi einnig orðum sínum að Trump forseta sem hótaði í kosningabaráttunni að skrúfa fyrir fjármagn frá alríkinu ef Mamdani yrði kjörinn. „Donald Trump, ég veit að þú ert að horfa. Hækkaðu í tækinu því við viljum draga slæma fasteignabaróna til ábyrgðar. Því að „Donald Trump-týpurnar“ í borginni okkar líður orðið allt of vel að misnota leigjendur sína,“ sagði Mamdani. Áfram hélt Mamdani. „Ef einhver getur sýnt landinu, sem Donald Trump hefur brugðist, hvernig á að sigra hann, þá er það borgin sem tryggði uppgang hans. Og ef það er einhver leið til að hræða einvald, þá er það með því að rífa niður það sem gerði honum kleift að tryggja sér völd.“ Kom eins og stormsveipur inn á hið pólitíska svið Mamdani hefur heitið því að auka skatta á auðmenn borgarinnar, tryggja að frítt verði í strætó, ná stjórn á leigumarkaðnum og sömuleiðis koma á matvöruverslunum í samfélagseigu. Kosningabarátta Mamdani hefur vakið mikla athygli en hann hefur notast við samfélagsmiðla og grín til að ná til kjósenda. Frumleg myndskeið hans þar sem hann kynnti skýra stefnu sína náðu mörg gríðarlegri dreifingu á samfélagsmiðlum svo athygli vakti. Kosningabaráttan hans var háð að stærstum hluta án fjármagns frá lobbíistum eða auðmönnum. Flutti til Bandaríkjanna sjö ára Zohran Kwame Mamdani er fæddur árið 1991 í Kampala í Úganda. Móðir hans er Mira Nair, þekkt kvikmyndagerðarkona og faðir hans, Mahmood Mamdani, er þekktur prófessor í nýlendufræðum og mannfræði við Columbia-háskóla. Foreldrarnir eru báðir fæddir á Indlandi og er móðirin hindúatrúar og faðirinn múslimi. Zohran er sömuleiðis múslimi en hann er eina barn foreldra sinna. Fjölskyldan flutti frá Úganda til Suður-Afríku, en þegar Zohran var sjö ára flutti fjölskyldan til Bandaríkjanna og settist að í New York. Hann stundaði svo nám í afrískum fræðum og kom fram sem rappari undir listamannsnafninu Mr. Cardamom. Hann bauð sig svo fram og náði sæti á ríkisþingi í New York fyrir borgarhlutann Astoria í Queens. Hann tilkynnti í október á síðasta ári að hann myndi bjóða sig fram til borgarstjóra í New York og var að lokum útnefndur frambjóðandi Demókrataflokksins.
Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Ítrekar hótanir sínar og hvetur íbúa til að kjósa Cuomo Íbúar New York ganga að kjörborðinu í dag til að velja sér nýjan borgarstjóra. Skoðanakannanir benda til þess að Demókratinn Zohran Mamdani muni bera sigur úr býtum, þrátt fyrir ítrekaðar hótanir Bandaríkjaforseta gegn honum. 4. nóvember 2025 06:52 Mamdani mælist með gott forskot degi fyrir kosningar Yfir 735 þúsund íbúar New York hafa kosið utan kjörfundar í borgarstjórakosningunum sem fara fram á morgun, þar af 151 þúsund manns sem greiddu atkvæði í gær. 3. nóvember 2025 07:07 Mest lesið Reikna með tveggja daga aðalmeðferð í máli Alberts Innlent Situr í súpunni eftir að hafa selt bankaþjófi jeppa Innlent „Versta martröð Trumps“ kjörin borgarstjóri New York Erlent Gat keypt afmælisblómin eftir að ókunnugur mætti með skóflu Innlent Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Innlent Sonurinn sefur enn með kylfu undir rúminu Innlent Féll til jarðar rétt eftir flugtak Erlent Ferðin á Keflavíkurflugvöll það erfiðasta við utanlandsferðina Innlent Hæstiréttur ógildir skammir Persónuverndar í garð ÍE Innlent Óttast að stóru stofurnar gætu orðið einræðisherrar í eftirliti Innlent Fleiri fréttir Banna samtök íslamista og gerðu húsleit hjá fleiri Evrópuríki ná saman um verulega útþynnt loftslagsmarkmið Stofnar Facebook hóp fyrir hatur gegn sjálfum sér Sjö látnir eftir flugslysið í Kentucky Tugir látnir eftir fellibyl á Filippseyjum „Versta martröð Trumps“ kjörin borgarstjóri New York Féll til jarðar rétt eftir flugtak Fundu 1,7 tonn af kókaíni í kafbát á miðju Atlantshafi Náðu myndum af háhyrningum að velta hvítháfum og éta úr þeim lifrina Fer fram og til baka með SNAP Dick Cheney, einn arkítekta Íraksstríðsins, er látinn Með meðvitund fastur í rústunum en lést á leið á sjúkrahús Hyggjast banna klám sem sýnir kyrkingar Ítrekar hótanir sínar og hvetur íbúa til að kjósa Cuomo Ætlar ekki að láta „óða“ Demókrata kúga sig Ódæðin í Súdan mögulega glæpir gegn mannkyninu Handtekin fyrir að leka myndbandi af misþyrmingu á fanga Myndar stjórn með fjarhægriflokkum Miðaldaturn í Róm hrundi að hluta Áfengisneysla „Evrópumeistara í unglingadrykkju“ dregst saman Bandarískir erindrekar hótuðu evrópskum kollegum sínum Konur í Afganistan óttist raunverulega að heimurinn gleymi þeim Mamdani mælist með gott forskot degi fyrir kosningar Að minnsta kosti 20 látnir eftir stóran skjálfta í Afganistan Segir Bandaríkin ekki geta ráðist inn Konur í Afganistan óttist raunverulega að heimurinn gleymi þeim Annar hinna handteknu látinn laus: „Drepið mig, drepið mig, drepið mig“ Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Fjórir útskrifaðir af spítala en tveir enn í lífshættu Drónaumferð við herstöð í Belgíu Sjá meira
Ítrekar hótanir sínar og hvetur íbúa til að kjósa Cuomo Íbúar New York ganga að kjörborðinu í dag til að velja sér nýjan borgarstjóra. Skoðanakannanir benda til þess að Demókratinn Zohran Mamdani muni bera sigur úr býtum, þrátt fyrir ítrekaðar hótanir Bandaríkjaforseta gegn honum. 4. nóvember 2025 06:52
Mamdani mælist með gott forskot degi fyrir kosningar Yfir 735 þúsund íbúar New York hafa kosið utan kjörfundar í borgarstjórakosningunum sem fara fram á morgun, þar af 151 þúsund manns sem greiddu atkvæði í gær. 3. nóvember 2025 07:07