Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. október 2025 19:20 Brigitte og Emmanuel Macron, forsetahjón Frakklands. EPA Réttað er yfir tíu manns í París sem hafa sagt forsetafrú Frakklands vera karlmann. Þau hafa verið kærð fyrir netáreitni en álíka mál hefur einnig verið höfðað í Bandaríkjunum.
Samsæriskenningar hafa verið á lofti um að Brigitte Macron, eiginkona Emmanuel Macron Frakklandsforseta, hafi fæðst sem karlmaður sem heitir Jean-Michel Trogneux. Jean-Michel er í raun bróðir Brigitte en hún bar nafnið Trogneux áður en hún gekk í hjónaband. Hjónin höfðuðu fyrst mál í Bandaríkjunum á hendur Candace Owens, bandarískum þáttastjórnanda og álitsgjafa. Owens, sem er afar vinsæl meðal stuðningsmanna Donalds Tump Bandaríkjaforseta, gaf út átta þátta hlaðvarpsseríu kallaða „að vera Brigitte.“ Macron-hjónin óskuðu eftir að Owens myndi draga fullyrðingar sínar til baka en hún fjallaði þá enn frekar um málið og sagði forsetahjónin vera skyld og samband þeirra sifjaspell. Brigitte hefur nú höfðað annað mál gegn tíu manns fyrir netáreitni og hófust réttarhöld í dag. Um er að ræða átta karlmenn og tvær konur á aldrinum 41 til sextíu ára. Ef þau reynast sek geta þau þurft að dúsa í fangelsi í allt að tvö ár. Öll hafa neitað sök en þau eru kærð fyrir að láta fjölda illgjarnra athugasemda falla um kyn og kynhneigð forsetafrúarinnar. Að auki hafa þau sett út á aldursmun þeirra hjóna og sakað hana um barnaníð. Hjónaband Emmanuel og Brigitte hefur oft verið á milli tannanna á fólki en töluverður aldursmunur er á þeim eða um 24 ár. Þau hittust fyrst árið 1993 þegar hún var 39 ára kennari Emmanuel sem var þá fimmtán ára. Hún var sjálf gift manni að nafni Auziére en þau skildu árið 2006. Macron-hjónin giftu sig árið 2007, þegar Emmanuel var þrítugur og Brigitte 54 ára. Konurnar tvær eru Aurélien Poirson-Atlan, þekkt sem Zoé Sagan á samfélagsmiðlum og Delphine J., sem birti fjögurra klukkustunda viðtal við blaðamanninn Natacha Rey, þar sem þær héldu því fram að Brigitte hefði fæðst sem karlmaður. Þær voru áður dæmdar til að greiða Brigitte skaðabótagreiðslu en sakfellingin felld úr gildi við áfrýjun dómsins. Niðurstaða áfrýjunarinnar var að málið félli ekki undir skilgreiningu á meiðyrðum. Samkvæmt The Guardian ætla hjónin að leggja fram vísindalegar staðreyndir um að Brigitte sé í raun kvenkyns.
Frakkland Bandaríkin Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira