Netanyahu segist staðráðinn í því að heimta líkinn af Hamas Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. október 2025 08:07 Íbúar Gasa eru nú farnir að snúa aftur til heimkynna sinna, sem eru rústir einar. Getty/Doaa Albaz Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, segist staðráðinn í því að þvinga Hamas liða til að skila líkamsleifum allra þeirra gísla sem létust í haldi samtakanna.
Níu lík hafa verið afhent hingað til en erfiðlega gengur að hafa uppi á nítján þeirra. Mörg virðast hafa verið grafin á stöðum þar sem erfitt er að komast að þeim. Netanyahu tjáði sig við athöfn sem haldin var í gær í minningu þeirra hermanna Ísraelshers sem látist hafa á síðustu tveimur árum. Sagði hann að stjórnvöld héldu enn fast við það að ná fram öllum markmiðum sínum og að óvinir Ísraels hefðu nú upplifað að árásir gegn borgurum landsins yrðu goldnar dýru verði. Hamas hafa fyrir sitt leyti sakað Ísraelsmenn um að brjóta gegn gildandi vopnahléi með því að skjóta 24 til bana frá því á föstudag. Stjórnvöld vinni statt og stöðugt að því að grafa undan samkomulaginu. Ísraelsher hefur sagt að nokkrir Palestínumenn hafi ekki virt þau fyrirmæli að halda sig frá þeirri stöðu sem herinn tók sér í kjölfar vopnahlésins og að skotið hafi verið á viðkomandi til að „fjarlægja ógnina“. Bandaríkjamenn hafa leitast við að gera sem minnst úr ásökunum beggja aðila og fullyrt að báðir séu enn staðráðnir í því að standa við skilmála vopnahléssamkomulagsins. Fulltrúar hjálparsamtaka á svæðinu segja þó langt í frá að það hafi gengið eftir að næg aðstoð sé að berast inn á svæðið. Smitsjúkdómar séu að dreifast þannig að ekki fæst við ráðið og þá séu aðeins þrettán spítalar af 36 á svæðinu enn starfandi, margir aðeins að hluta til.
Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Hernaður Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Fleiri fréttir Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Sjá meira