Forseti Madagaskar flúinn og herinn við völd Samúel Karl Ólason skrifar 14. október 2025 10:24 Hermenn og mótmælendur hafa tekið höndum saman í Madagaskar. AP/Mamyrael Andry Rajoelina, forseti Madagaskar, segist farinn í felur eftir að hermenn og pólitískir andstæðingar hans reyndu að ráða hann af dögum. Óljóst er hvar hann er en fregnir hafa borist af því að forsetinn hafi flúið land í franskri herflugvél.
Útlit er fyrir að herinn stjórni nú Madagaskar. Rajoelina lýsti því þó yfir í yfirlýsingu sem hann birti á Facebook í gærkvöldi að hann hefði leyst upp neðri deild þingsins en samkvæmt frétt Reuters er óljóst hvort forsetinn hafi yfir höfuð völd til þess. Umfangsmikil mótmæli gegn stjórn Rajoelina hafa verið haldin í Madagaskar á undanförnum dögum. Að miklu leyti hafa þau verið haldin vegna skorts á rafmagni og neysluvatni í eyríkinu fátæka en umfang þeirra hefur aukist. Um helgina lýstu svo leiðtogar valdamikillar herdeildar sem kallast CAPSAT og kom Rajoelina til valda í valdaráni árið 2009 yfir að þeir hefðu tekið stjórn á öllum herafla ríkisins og tóku einhverjir þeirra þátt í mótmælum gegn forsetanum um helgina. Andry Rajoelina, forseti Madagaskar.AP/Alexander Joe Yfirmenn úr bæði hernum og lögreglunni sögðust um helgina hafa neitað að verða við skipunum um að skjóta mótmælendur en Sameinuðu þjóðirnar segja að fyrstu dagana hafi að minnsta kosti 22 mótmælendur verið skotnir til bana. Einhverjir þeirra af hermönnum og lögregluþjónum en aðrir af glæpamönnum, samkvæmt frétt France24. Í frétt BBC segir að nýr yfirmaður heraflans, sem CAPSAT setti í embætti, hafi fundað með hæst settu mönnum hersins. Í kjölfarið lýsti hann því yfir að herinn væri að tryggja öryggi og stöðugleika í Madagaskar. Auk Rajoelina hafa aðrir ráðamenn einnig flúið land. Ónafngreindur stjórnmálamaður úr stjórnarandstöðu ríkisins sagði í samtali við BBC að herinn væri í raun búinn að taka völd. Madagaskar, sem er eitt fátækasta ríki heims, hefur nokkrum sinnum gengið gegnum uppreisnir frá því ríkið varð sjálfstætt árið 1960. Árið 2009 áttu sér stað umfangsmikil mótmæli í landinu og var þáverandi forseta, Marc Ravalomanana, bolað úr embætti. Eins og áður hefur komið fram tók Rajoelina við af honum og stýrði ríkinu í fjögur ár. Hann tók aftur við embætti forseta eftir kosningar árið 2018.
Madagaskar Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira