Fékk mynd af sér með Littler eftir viðureign þeirra Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. október 2025 14:17 Alexander Veigar Þorvaldsson með heimsmeistaranum Luke Littler. Alexander Veigar Þorvaldsson mætti sjálfum heimsmeistaranum í pílukasti, Luke Littler, á HM ungmenna í dag.
Alexander og Littler voru saman í riðli ásamt Jeffrey Keen og Matthias Moors. Keppt var í 32 fjögurra manna riðlum og komust tveir efstu áfram í 64-liða úrslit. Littler vann alla þrjá leikina sína í riðlinum eins og við mátti búast enda heimsmeistari fullorðinna, hvorki meira né minna, þrátt fyrir að vera aðeins átján ára. Alexander tapaði fyrir Moors, 5-3, í fyrsta leik sínum. Í öðrum leiknum mætti Grindvíkingurinn svo Littler. Alexander vann fyrsta legginn, Littler næstu tvo en Alexander jafnaði í 2-2. Þá sagði Littler hingað og ekki lengra, vann næstu þrjá leggi og viðureignina, 5-2. Littler var með 108,59 í meðaltal en Alexander 92,64 sem hefði eflaust dugað til sigurs gegn mörgum. En Littler sýndi hvers hann er megnugur, sérstaklega í sjötta og sjöunda legg sem hann vann samanlagt með 21 pílu. Í þriðja og síðasta leik sínum í riðlinum mætti Alexander Keen og tapaði naumlega, 5-4. Alexander fór þó ekki tómhentur heim því hann nældi sér í mynd af sér með Littler. Þá lagði hann vel inn í reynslubankann fyrir komandi verkefni.
Pílukast Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Fleiri fréttir Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Síðasti dansinn hjá Kelce? Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Guðrún Brá og Gunnlaugur Árni slógu best í ár Amanda hætt hjá Twente Sjá meira