Nagelsmann ætlaði ekki að sýna Norður-Írum vanvirðingu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. október 2025 07:30 Julian Nagelsmann og þýsku strákarnir hans sækja Norður-Írland heim í undankeppni HM 2026 í kvöld. epa/CHRISTOPHER NEUNDORF Julian Nagelsmann, þjálfari þýska karlalandsliðsins í fótbolta, segist ekki hafa ætlað sér að gera lítið úr norður-írska landsliðinu eftir leik liðanna í undankeppni HM 2026 í síðasta mánuði.
Þýskaland vann leik liðanna í Köln í september, 3-1. Eftir leikinn sagði Nagelsmann að fótboltinn sem Norður-Írland spilaði væri ekkert augnayndi og liðið beitti mikið af löngum sendingum. Ummæli Nagelsmanns mæltust misvel fyrir hjá Norður-Írum og einhverjum þótti hann sýna þeim lítilsvirðingu með þeim. Nagelsmann segir að það hafi ekki verið ætlun sín. „Ég sagði að þetta væri kannski ekki fallegt áhorfs en það mikilvægasta, lykilatriðið, er að þeir gera þetta mjög vel. Það er hugsun á bakvið löngu boltana,“ sagði Nagelsmann en Norður-Írland og Þýskaland mætast í Belfast í kvöld. „Það er sérstök stemmning í liðinu og ég sagði einnig að það væri mjög erfitt að vinna það. Þeir fá ekki mörg mörk á sig og skapa mörg færi, líka eftir föst leikatriði, með þessum hætti. Ef einhver móðgaðist biðst ég afsökunar. Ég ætlaði ekki að sýna vanvirðingu. Ég ber virðingu fyrir liðinu og hvernig það spilar.“ Þýskaland og Norður-Írland eru bæði með sex stig í A-riðli undankeppninnar þegar hvort lið á þrjá leiki eftir. Þjóðverjar eru í efsta sæti riðilsins sökum betri markatölu.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira