Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. október 2025 14:05 Baldvin Z gefur ekki mikið fyrir gervigreindarleikkonuna Tilly Norwood, einmitt vegna þess að hún sé alveg fyrirsjáanleg. Steiney Skúla og Dóra Jóhanns gera grín að leikstjóranum vegna orða hans um leikkonur. Vísir/Vilhelm Leikstjórinn Baldvin Z telur gervigreindarleikara ekki spennandi því fegurðin í góðum leik felist í hinu óvænta. Á tökustað þurfi maður að vera tilbúinn fyrir alls konar uppákomur, til dæmis leikkonu á blæðingum sem sé í vondu skapi.
Baldvin var gestur í Síðdegisútvarpinu á Rúv í gær ásamt Sigurgeiri Arinbjarnarsyni tæknibrellumeistara til að ræða um gervigreindarleikkonuna Tilly Norwood sem hefur verið í fréttum undanfarið og er afar umdeild í skemmtanabransanum. Norwood var sköpuð fyrr á þessu ári af Xicoia, gervigreindardeild framleiðslufyrirtækisins Particle6 Group, en hún birtist fólki sem „upprennandi leikkona“ í Lundúnum. Fyrsta „verk“ Norwood var sketsinn „AI Commissioner“ og í september bárust fréttir af því að hún væri komin á mála hjá umboðsskrifstofu. Baldvin og Sigurgeir sammæltust um í þættinum að gervigreindarleikarar væru ekki spennandi og að þeir myndu ekki ráða Norwood. „Það hljómar ekkert sérstaklega spennandi fyrir leikstjóra að vinna með þannig fyrirbæri því að fegurðin í því að búa til góða senu, þar sem leikur er góður, kemur alltaf úr óvæntri átt. Þú planar og skipuleggur og reynir að koma öllum þeim upplýsingum á framfæri til leikara sem þú vilt að hann hafi þegar hann gerir þessa senu,“ sagði Baldvin um gervigreindarleikkonuna. Maður þurfi að díla við óvænta hluti Óvæntir hlutir og uppákomur væru síðan það sem gerðu senur fallegar. „Ef ég er með kalkúleraðan leikara á setti sem gerir nákvæmlega það sem ég segi þá verður þetta, held ég, ekki alveg nógu gott,“ sagði Baldvin. Baldvin Z segir að á tökustað geti ýmislegt gerst.vísir/vilhelm „Án þess að segja einhver nöfn þá hef ég verið með leikara á setti sem hlustaði aldrei á mig, hann var búinn að ákveða fyrirfram hvað hann ætlaði að gera. Það var bara mjög erfitt að díla við það og ég sé fyrir mér að þetta sé svipað, það kemur ekkert ,reaction' á neitt,“ sagði hann. Baldvin segir að á tökustað þurfi maður að vera tilbúinn að bregðast við alls konar uppákomum. „Þú getur bara verið með konu sem er á túr og hún er í vondu skapi þennan dag. Við þurfum bara að díla við það á setti og einhvern veginn embrace-a það inn í verkið,“ sagði Baldvin. Kvikmyndafólk geti þannig lent í alls konar uppákomum og allt sé gert til þess að gera verkið sem áhugaverðast. Lýsingar Baldvins á áskoruninni sem fylgir því að starfa með konum á blæðingum hljóma eflaust nokkuð gamaldags í eyru magra. Dóra deildi viðtalinu við Baldvin. Dóra Jóhannsdóttir, leikkona, handritshöfundur og leikstjóri, birti klippu úr viðtalinu á Facebook-sögu sinni og virtist greinilega vera að hæðast þar að kollega sínum. „Aðdáunarvert hvernig Baldvin Z nær að díla við leikkonur sem eru á túr og í vondu skapi og nær að „embrace-a“ það inn í verkin sín,“ skrifaði hún við klippuna. Steiney Skúladóttir, leikkona og sketsahöfundur, gerði líka grín að orðum Baldvins á TikTok í gær. Á myndskeiðinu má sjá Steineyju ásamt þremur öðrum hlusta á viðtalið og ýmist kinka kolli eða hrista hausinn. „Baldvin Z hefur lent í HRÆÐILEGUM HLUTUM á setti!!“ skrifar hún við myndbandið sem hefur vakið mikla athygli og hefur fengið tuttugu þúsund áhorf á tæpum sólarhring. @steiney_skula Baldvin Z hefur lent í HRÆÐILEGUM HLUTUM á setti!! ♬ original sound - Steiney Skúladóttir
Gervigreind Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Lífið Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Lífið Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Lífið „Maður á ekki að vera feiminn við að vera fínn“ Tíska og hönnun Ljósavinir fögnuðu í Sjálandi Lífið Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Menning Munur er á manviti og mannviti Menning Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Lífið Bein útsending: Litlu jól Blökastsins Jól Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Fleiri fréttir Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði „Mamma, ég gat þetta“ Opnar sig um kaupfíkn sem kviknaði þegar hún var sjö ára Gummi skíthræddur við Sigurjón Kjartans Þessi stóðu upp úr hjá Spotify í ár „Mig langar að elska þig alla daga, ævilangt“ „Lendir auðvitað í því að vera alltaf málaður upp sem voðalega vondur“ Sjá meira