Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 4. október 2025 20:31 Presturinn og prófasturinn, sem er mjög spenntur fyrir nýju Hrútaskránni, sem kemur fljótlega út í tengslum við fengitímann. Magnús Hlynur Hreiðarsson Prestur og prófastur á Suðurlandi ræður sér vart yfir spenningi að bíða eftir því að Hrútaskráin komi út enda segir hann að skráin sé eitt af helgiritum heimilisins áður en fengitíminn hefst. Sjálfur er klerkurinn með um 100 fjár.
Réttað hefur verið síðustu vikur á Suðurlandi eins og í öðrum landshlutum. Séra Óskar Hafsteinn prestur í Hruna og prófastur í Suðurprófastsdæmi mætir alltaf í Hrunaréttir við Flúðir þó hann eigi ekkert fé þar því hann rekur ekki á fjall. En á sama tíma finnst honum alltaf ómetanlegt að komast í réttirnar og skoða lömbin og sjá hvernig féð kemur af fjalli. Sjálfur er hann með um hundrað kindur í Hruna. Séra Óskar segir allt svo skemmtilegt og ánægjulegt við sauðfjárræktina og þar spilar Hrútaskráin stórt hlutverk hjá honum. „Það hefur allt sinn sjarma, réttarstörfin og fjárragið á haustin. Svo sauðburðurinn á vorin að ógleymdum fengitímanum og Hrútaskránni. Ég veit ekki, árið er bundið,” segir Óskar. Þannig að þú ert spenntur fyrir Hrútaskránni? „Já mjög, það er bara eitt af helgiritunum á heimili mínu”. Hrútaskráin frá því í fyrra en ný Hrútaskrá mun koma út fljótlega. Magnús Hlynur Hreiðarsson En hvernig er að vera sauðfjárbóndi í dag? „Það er bara dásamlegt, þetta er algjörlega hluti af því að búa í svona samfélagi að vera með fé,” segir Óskar. Í Hruna eru um 100 fjár. Ekki er rekið á fjall á bænum. Magnús Hlynur Hreiðarsson Prestur, sauðfjárbóndi og prófastur, hvernig fer þetta saman? „Þetta er bara hannað saman, þetta verður ekki betra,” segir hann kampakátur. Séra Óskar Hafsteinn býr á prestsetrinu Hruna í Hrunamannahreppi með sinni fjölskyldu.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Hrunamannahreppur Sauðfé Landbúnaður Þjóðkirkjan Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Fleiri fréttir Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Sjá meira