Ben kveður Jerry Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. september 2025 20:15 Ben Cohen og Jerry Greenfield, stofnendur Ben & Jerry's, með ís með andliti Kamala Harris, þáverandi forsetaframbjóðandi til forseta Bandaríkjanna. Getty Annar stofnandi ísframleiðandans Ben & Jerry's hefur sagt skilið við fyrirtækið. Ástæðan séu þöggunartilburðir móðurfélags framleiðandans sem styður ekki við stefnu Ben og Jerry að láta samfélagsleg málefni sig varða. Framleiðendunrir hafa, á vegum fyrirtækisins, tekið afstöðu til ýmissa samfélagslegra mála, svo sem Black Lives Matter. „
Ég hélt að ég myndi aldrei skrifa þetta, en eftir 47 ár hefur Jerry tekið þá erfiðu ákvörðun að stíga til hliðar í fyrirtækinu sem við byggðum upp saman,“ skrifar Ben Cohen, annar stofnandi Ben & Jerry's í færslu á Instagram. Ben og Jerry láta hvorugir lítið fara fyrir sínum pólitísku skoðunum. Til að mynda studdu þeir við bakið á Black Lives Matter-hreyfingunni og árið 2021 sögðust þeir ætla að hætta að selja vörurnar sínar í Ísrael. Fyrr á þessu ári var Ben handtekinn eftir að hafa truflað fund þingnefndar öldungardeildar þar sem til umræðu var fjárstyrkur fyrir Ísraelsher. Með færslunni fylgir tilkynning frá Jerry Greenfield þar sem hann segist ekki geta haft það á samviskunni að halda áfram að starfa fyrir fyrirtækið, sem nú er í eigu Unilever. „Þetta er ein erfiðasta og sársaukafyllsta ákvörðun sem ég hef nokkurn tímann tekið,“ segir Jerry. Ben & Jerry's var stofnað árið 1978 en árið 2000 keypti Unilever fyrirtækið. Stofnendurnir fengu að setja á fót sérstakt ráð sem sæi um vörumerki íssins sem samræmist hugmyndafræði þeirra. Samkvæmt NYT er ekki um algenga lausn að ræða en ætlunin var að stofnendurnir fengju að láta sína skoðun í ljós. Hins vegar hefur samstarfið farið versnandi og kærðu Ben og Jerry Unilever árið 2024 fyrir að reyna uppræta ráðið og koma í veg fyrir að þeir myndu kalla eftir vopnahléi á Gasa. Jerry Greenfield og Ben Cohen, stofnendur Ben & Jerry's árið 1987. Þeir standa við ísbílinn „Cowmobile“.AP „Frá upphafi, trúðum ég og Ben að okkar gildi og leitin að réttlæti væru mikilvægari en fyrirtækið sjálft. Ef fyrirtækið gæti ekki staðið fyrir það sem við trúum á, þá væri ekki þess virði að reka fyrirtæki,“ segir Jerry. Hann segir ráðið hafa verið beitt þöggun af móðurfyrirtækinu og hafi þeir ekki fengið tækifæri til að tjá sig um mál sem þeir vildu tjá sig um vegna ótta við að reita eigendurna til reiði. Jerry segir sjálfstæði þeirra ekki vera lengur til staðar og því geti hann ekki, samviskunnar vegna, starfað áfram hjá Ben & Jerry's.
Ís Bandaríkin Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira