Umspilið hefst í kvöld: „Fengum hjálp frá greiningardeildinni á Húsavík“ Sindri Sverrisson skrifar 17. september 2025 13:13 Hermann Hreiðarsson gæti stýrt liði upp úr Lengjudeildinni annað árið í röð, eftir að hafa komið ÍBV upp í fyrra. vísir/Lýður Umspilið um laust sæti í Bestu deild karla hefst í kvöld. Tveir Eyjapeyjar stýra liðum gegn hvor öðrum í undanúrslitunum, þegar HK og Þróttur mætast í Kórnum. Þjálfari HK-inga sótti sér aukaþekkingu á ferð liðsins til Húsavíkur.
Þórsarar tryggðu sér um helgina sigur í Lengjudeildinni og nú tekur við fjögurra liða umspil um seinna lausa sætið í Bestu deildinni. HK, Þróttur, Keflavík og Njarðvík ætla sér það sæti. Umspilið í Lengjudeild karla 2025. Eitt lið tryggir sér sæti í Bestu deildinni.KSÍ Þjálfarar HK og Þróttar koma báðir úr Vestmannaeyjum, þeir Hermann Hreiðarsson og Sigurvin Ólafsson, og verður spennandi að fylgjast með skák þeirra. „Við höfum mæst nokkuð oft og erum alveg að fá leið hvor á öðrum,“ sagði Hermann léttur í Sportpakkanum á Sýn í gærkvöld, áður en hann bætti við: „Það er alltaf jafngaman að spila við liðin hjá Venna. Hann spilar skemmtilegan fótbolta og þetta verður hörkuviðureign.“ Innslagið má sjá hér að neðan. HK-ingar unnu tvo síðustu leiki sína fyrir lok deildarkeppninnar, á meðan Þróttur tapaði síðustu tveimur sínum, og virðist Hermann hafa sótt sér aukaþekkingu í lokaumferðinni þegar HK vann 4-0 sigur gegn Völsungi á Húsavík. „Við fengum hjálp frá greiningardeildinni á Húsavík,“ sagði Hermann léttur í bragði án þess að útskýra það neitt nánar. Takist Hermanni að koma HK upp í Bestu deildina myndi hann afreka það að koma liði upp tvö ár í röð, eftir að hafa unnið deildina með ÍBV í fyrra. „Við erum búnir að enda þetta vel [deildarkeppnina] og komum stemmdir í þetta. Það er allt undir núna og fjögur hörkulið í skemmtilegri keppni. Þeir [Þróttarar] eru búnir að eiga frábært tímabil. Við erum búnir að spila tvo leiki við þá í sumar, hörkuleiki, og við eigum von á því sama núna,“ sagði Hermann.
Lengjudeild karla Þróttur Reykjavík HK Mest lesið Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Fleiri fréttir Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Sjá meira