Eyðir afmælisdegi dótturinnar í fasteignadeilur Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. ágúst 2025 09:49 Katy Perry hefur tvisvar staðið í áralöngum fasteignadeilum. Getty Tónlistarkonan Katy Perry mun bera vitni frammi fyrir dómara á fimm ára afmælisdegi dóttur sinnar í tengslum við fasteignadeilur í Santa Barbara sem ná fimm ár aftur í tímann. Fyrir tíu árum átti Perry í deilum við hóp nunna vegna kaupa á nunnuklaustri.
Bandaríski dægurmiðillinn People greinir frá því að hin fertuga Perry, sem heitir réttu nafni Katheryn Elizabeth Hudson, muni bera vitni gegnum fjarfundarbúnð þriðjudaginn 26. ágúst næstkomandi í tengslum við áralangar deilur um fasteign í Santa Barbara í Kaliforníu. Perry mun því þurfa frá að hverfa í einhvern tíma á fimm ára afmælisdegi dóttur hennar, Daisy Dove Bloom, sem hún á með leikaranum Orlando Bloom. Parið hætti saman í júní eftir níu ára samband og síðan þá hefur tvívegis sést til Perry á stefnumóti með Justin Trudeau, fyrrverandi forsætisráðherra Kanada. Perry átti að bera vitni fimmtudaginn 21. ágúst síðastliðinn en vegna tónleikaferðlagsins The Lifetimes Tour, sem hófst í apríl og lýkur í desember, gat hún ekki verið viðstödd. Dómari í málinu lýsti yfir vanþóknun sinni ákvörðun Perry. „Mér líst illa á aðferð á hlið fröken Hudson. Það sýnir hana í slæmu ljósi,“ sagði dómarinn Joseph Lipner. Lögfræðiteymi Perry baðst afsökunar á ákvörðuninni en sagði hana ekki byggja á taktík eða kænsku. Vann fyrsta málið og krefst nú skaðabóta Málið nær aftur til 2020 þegar þáverandi parið, Perry og Bloom, gerði kaupsamning um kaup á höfðingjasetri í smábænum Montecito í Santa Barbara af áttræða athafnamanninum Carl Westcott fyrir fimmtán milljónir dala. Westcott, sem greindist með arfgerða heilaröskun árið 2015, skipti um skoðun nokkrum dögum eftir að kaupsamningurinn var gerður. Samkvæmt dómsskjölum hélt Westcott því fram að hann hefði ekki verið í réttu hugarástandi til að skrifa undir bindandi samning og vildi hætta við söluna. „Sambland aldurs hans, hrörleiki hans vegna bakmeiðsla og nýlegrar aðgerðar, og ópíóðarnir sem hann tók mörgum sinnum á dag gerði að verkum að Herra Westcott var andlega vanheill,“ sögðu lögfræðingar Westcott í dómsskjölum. Dómari dæmdi Perry í hag 2023 og varð hún formlega eigandi fasteignarinnar í maí 2024 samkvæmt Wall Street Journal. Málinu lauk þó ekki þar, Perry höfðaði mál gegn Westcott vegna leigutaps og viðhaldsfrestunar og krafðist um 4,9 milljón dala í skaðabætur. Eins og sagði áður átti Perry í deilum við aðra aldraða fasteignaeigendur þegar hópur af nunnum reyndu að koma í veg fyrir að hún gæti keypt nunnuklaustur þeirra í Kaliforníu. Perry fékk kauprétt að eigninni árið 2017 en skilyrði fyrir kaupunum var að hún myndi finna nýjan stað fyrir bænahús nunnanna. Perry tókst það ekki og réttur hennar til kaupanna rann út 2019. Dómsmálsins er helst minnst fyrir það að ein nunnan hneig niður og lést í dómsal árið 2018.
Bandaríkin Hollywood Tengdar fréttir Nunna í lagadeilum vegna Katy Perry lést í réttarsal Katy Perry reyndi að kaupa klaustur af nunnum árið 2015. 10. mars 2018 23:49 Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Menningarsprautur í hvísluleik Menning Fleiri fréttir Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Sjá meira
Nunna í lagadeilum vegna Katy Perry lést í réttarsal Katy Perry reyndi að kaupa klaustur af nunnum árið 2015. 10. mars 2018 23:49