Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Kristján Már Unnarsson skrifar 18. ágúst 2025 12:12 Grétar Br. Kristjánsson lögmaður vann allan sinn starfsferil hjá Loftleiðum og síðar Flugleiðum og sat lengst allra í stjórn Flugleiða, í 32 ár, þar af sem varaformaður stjórnar í 18 ár. Vísir/Egill Aðalsteinsson Grétar Br. Kristjánsson lögmaður er látinn, 87 ára að aldri. Sem einn af lykilstjórnendum Loftleiða og síðar Flugleiða var hann einn valdamesti maður íslenska fluggeirans um áratugaskeið. Hann er sá sem lengst allra sat í stjórn Flugleiða, í 32 ár, þar af sem varaformaður stjórnar í 18 ár, en stóð þó jafnan utan sviðsljóssins.
Greint er frá andláti Grétars í Morgunblaðinu í dag en hann lést á Landspítalanum síðastliðinn föstudag, 15. ágúst. Í þættinum Ísland í dag, sem sýndur var þann 15. maí í vor, rifjaði Grétar upp átakatíma í kringum flugfélögin og sagði sögur úr fluginu. Grétar fæddist 15. september 1937 í Reykjavík en foreldrar hans voru Kristján Guðlaugsson hæstaréttarlögmaður og Bergþóra Brynjúlfsdóttir húsmóðir. Faðir Grétars var ritstjóri Vísis og stjórnarformaður Loftleiða frá árinu 1953 til sameiningar flugfélaganna árið 1973 og síðar einnig Flugleiða um skamman tíma. Leið Grétars lá einnig í flugið. Hann hóf ungur að vinna hjá Loftleiðum sem sumarstarfsmaður meðfram skóla. Eftir að hafa lokið námi í lögfræði við Háskóla Íslands og sérmenntað sig í alþjóðaflugrétti í Kanada var hann ráðinn framkvæmdastjóri afgreiðslufyrirtækis Loftleiða á Keflavíkurflugvelli árið 1965 en því starfi gegndi hann til ársins 1973. Hjá Loftleiðum varð Grétar náinn samstarfsmaður Alfreðs Elíassonar forstjóra. Eftir að Alfreð veiktist alvarlega var Grétar um tíma staðgengill hans og gegndi því starfi allt árið 1973 en þá var verið að sameina flugfélögin. Eftirlifandi eiginkona Grétars er Gerður Gunnarsdóttir myndlistarmaður. Grétar lætur eftir sig fjögur börn, stjúpson, tíu barnabörn og níu langafabörn. Fleiri kaflar úr viðtalinu við Grétar bíða sýningar í þáttaröðinni Flugþjóðinni, sem verður á dagskrá Sýnar í vetur.
Andlát Icelandair Fréttir af flugi Flugþjóðin Tengdar fréttir Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Hann var einn valdamesti maður íslenska fluggeirans um áratugaskeið og sá sem lengst allra sat í stjórn Flugleiða. Hann stóð þó utan sviðsljóssins þrátt fyrir að hafa allan sinn starfsferil jafnframt verið einn af lykilstjórnendum Loftleiða og síðar Flugleiða. 14. maí 2025 13:00 Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Þorvaldur Guðmundsson athafnamaður, oftast kenndur við Síld og fisk, reyndist örlagavaldur í rekstri Loftleiða árið 1959. Grétar Br. Kristjánsson, sonur þáverandi stjórnarformanns Loftleiða, Kristjáns Guðlaugssonar, segir að Þorvaldur hafi sem stjórnarformaður Verzlunarsparisjóðsins, síðar Verslunarbankans, tryggt nauðsynleg lán til að Loftleiðir gætu keypt Douglas DC 6B-flugvélarnar sem urðu grunnurinn að velgengni flugfélagsins. 18. maí 2025 06:48 Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Flugleiðir voru á barmi gjaldþrots og höfðu engin tök á að halda þriðjungshlut sínum í Cargolux fyrir fjörutíu árum. Þetta er meginástæða þess að Íslendingar misstu tökin á frakflugfélaginu í Lúxemborg, að mati eins helsta valdamanns Flugleiða á þeim tíma. 14. maí 2025 22:11 Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Fleiri fréttir Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Sjá meira
Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Hann var einn valdamesti maður íslenska fluggeirans um áratugaskeið og sá sem lengst allra sat í stjórn Flugleiða. Hann stóð þó utan sviðsljóssins þrátt fyrir að hafa allan sinn starfsferil jafnframt verið einn af lykilstjórnendum Loftleiða og síðar Flugleiða. 14. maí 2025 13:00
Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Þorvaldur Guðmundsson athafnamaður, oftast kenndur við Síld og fisk, reyndist örlagavaldur í rekstri Loftleiða árið 1959. Grétar Br. Kristjánsson, sonur þáverandi stjórnarformanns Loftleiða, Kristjáns Guðlaugssonar, segir að Þorvaldur hafi sem stjórnarformaður Verzlunarsparisjóðsins, síðar Verslunarbankans, tryggt nauðsynleg lán til að Loftleiðir gætu keypt Douglas DC 6B-flugvélarnar sem urðu grunnurinn að velgengni flugfélagsins. 18. maí 2025 06:48
Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Flugleiðir voru á barmi gjaldþrots og höfðu engin tök á að halda þriðjungshlut sínum í Cargolux fyrir fjörutíu árum. Þetta er meginástæða þess að Íslendingar misstu tökin á frakflugfélaginu í Lúxemborg, að mati eins helsta valdamanns Flugleiða á þeim tíma. 14. maí 2025 22:11