Gular viðvaranir í dag en hiti að 27 stigum á morgun Atli Ísleifsson skrifar 15. ágúst 2025 07:11 Hiti verður 12tólf til tuttugu stig, hlýjast á Austurlandi. Vísir/Anton Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan kalda eða strekkingi á landinu í dag, en að síðdegis megi búast við allhvössum eða jafnvel hvössum vindstrengjum norðvestantil á landinu, frá Snæfellsnesi til Eyjafjarðar.
Á vef Veðurstofunnar segir að slíkur vindur geti verið varasamur fyrir þau ökutæki sem viðkvæmust séu fyrir vindi og séu oft á ferðinni að sumarlagi og því hafi gul viðvörun verið gefin út. Eru þær í gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra fram á sunnudag. Gular viðvaranir eru í gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra fram á sunnudag. Veðurstofan „Einnig er búist við að vindurinn verði þrálátur og að ekki lægi að gagni á þessum slóðum fyrr en á sunnudag. Hlýr og rakur loftmassi berst yfir landið með suðvestanáttinni og því má búast við þungbúnu veðri með súld. Léttara yfir og þurrt að mestu austantil á landinu. Hiti í dag 12 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi. Á morgun verður áfram skýjað á vestanverðu landinu og einhver súld af og til. Á Norðurlandi og á austurhelmingi landsins verður hins vegar yfirleitt léttskýjað og sólríkt og hiti á bilinu 18 til 27 stig, hlýjast á Austurlandi,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestan 5-13 m/s, en 13-20 á norðvestanverðu landinu. Súld vestantil framan af degi, en þurrt að kalla síðdegis. Hiti 11 til 15 stig. Léttskýjað norðaustan- og austanlands og hiti 20 til 27 stig þar. Á sunnudag: Suðvestan 5-13 m/s með vætu af og til, en víða bjartviðri á austurhelmingi landsins. Hiti 13 til 24 stig, hlýjast á Austurlandi. Á mánudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Dálítil rigning norðantil á landinu, en yfirleitt þurrt sunnanlands. Hiti 10 til 18 stig, mildast syðst. Á þriðjudag: Fremur hæg breytileg átt. Skýjað að mestu og lítilsháttar væta í flestum landshlutum. Hiti víða 12 til 16 stig. Á miðvikudag og fimmtudag: Hæg breytileg átt. Bjart með köflum og hiti yfirleitt á bilinu 13 til 18 stig.
Veður Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira