Félagið hans Birkis Bjarna gjaldþrota Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2025 09:32 Birkir Bjarnason hefur spilað með Brescia undanfarin tvö tímabil en var að renna út á samningi. Getty/Giuseppe Maffia Fornfrægt ítalskt fótboltafélag er farið á hausinn eftir 114 tímabil í ítalska boltanum. Leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, Birkir Bjarnason, lék með liðinu undanfarin tvö ár.
Brescia gat ekki staðið við sitt við lok leiktíðar og hefur lýst sig gjaldþrota. Það þýðir um leið að félagið, sem var í B-deildinni, missir sæti sitt í ítölsku deildarkeppninni. Aftonbladet segir frá. Birkir Bjarnason var með samning við félagið út júní en hann kom til Brescia í ágúst 2023 og hafði einnig spilað með liðinu í byrjun árs 2020. Birkir spilaði 27 deildarleiki með Brescia á nýloknu tímabili og skoraði í þeim fjögur mörk. Margir frægir leikmenn hafa líka spilað með Brescia, leikmenn eins og Roberto Baggio, Andrea Pirlo, Alessandro Altobelli, Luca Toni og Pep Guardiola. Brescia skuldar þrjár milljónir evra, 434 milljónir króna, og þurfti að borga skuldina í síðasta lagi á föstudaginn. Eigandinn, hinn 68 ára gamli Massimo Cellino, neitar að greiða skuldir félagsins. Það fór því svo að félagið átti ekki fyrir skuldum sínum og var lýst gjaldþrota. Cellino, átti einu sinni Leeds United, en hann hefur verið eignandi Brescia frá árinu 2017. Stuðningsmenn Brescia eru honum mjög reiðir og söfnuðust saman fyrir utan höfuðstöðvar félagsins til að mótmæla Cellino. View this post on Instagram A post shared by SportExpressen.se (@sportexpressen)
Ítalski boltinn Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Landsliðskona í Val Handbolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Myndi taka kúlu fyrir Infantino Baleba færist nær United Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Rodri genginn í raðir Barcelona Sjá meira