Írskur smáklúbbur græðir meira en hálfan milljarð þökk sé Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2025 22:16 Caoimhin Kelleher fagnar meistaratitli Liverpool með þeim Trent Alexander-Arnold og Andy Robertson. Getty/Carl Recine Liverpool hefur selt írska landsliðsmarkvörðinn Caoimhín Kelleher til enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford. Það er þó ekki bara Liverpool sem græðir á sölunni.
Hinn 26 ára gamli Kelleher hefur verið varamarkvörður Liverpool síðustu ár og oft komið mjög sterkur inn í meiðslum Alisson Becker. Hann verður núna aðalmarkvörður í ensku úrvalsdeildinni. Sala Kelleher kemur sér einnig afar vel fyrir írska smáklúbbinn Ringmahon Rangers. Gamla félagið hans Kelleher. Liverpool samdi við þriðju deildarfélagið fyrir tíu árum um að tuttugu prósent af sölu hans færu til félagsins. Brentford borgar Liverpool átján milljónir punda fyrir Kelleher en írska félagið fær þrjár milljónir punda af því eða meira en hálfan milljarð króna. „Þetta mun skipta okkur miklu máli. Hversu mikið veit ég ekki en þetta mun hjálpa okkur langt fram í framtíðina,“ sagði Paul Higgins, stjórnarmaður Ringmahon Rangers, við Irish Times. „Ég er rosalega ánægður. Ánægður fyrir hönd Caoimhín fyrst og fremst og fyrir hönd fjölskyldu hans. Þetta er stór dagur fyrir klúbbinn og við erum mjög stolt,“ sagði Higgins.
Enski boltinn Mest lesið Missti typpið út úr buxunum en náði samt besta tíma ársins Sport John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Körfubolti Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Fótbolti Eir Chang sló Íslandsmet liðsfélaga síns og Ísland vann 3. deildina Sport Átti fullkomið hlaup fyrir aftan nöfnu sína frá Moldóvu Sport Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fótbolti Keypti net í fluginu út á EM til að horfa á Systraslag Sport Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Sjá meira