Spilar með tilfinningum sínum: „Næst kýlir maður með vinstri“ Aron Guðmundsson skrifar 4. júní 2025 09:30 Tryggvi Garðar Jónsson varð tvöfaldur meistari með karlaliði Fram í handbolta á nýafstöðnu tímabili. Hann heldur nú út í atvinnumennskuna. Vísir/Sigurjón Tryggvi Garðar Jónsson, tvöfaldur meistari með Fram í handboltanum er á leið út í atvinnumennsku. Tímabilið hjá honum var ekki allt eins og blómstrið eina, Tryggvi spilar með tilfinningum sínum, þær leiða hann stundum í gönur en aftra því þó ekki að hann vinni titla. „
Maður þarf nú að halda þessu við þótt það sé búið að vera gaman hjá okkur upp á síðkastið. Maður þarf að hreyfa sig og sinna þessu, maður er nú íþróttamaður,“ segir Tryggvi sem tekur á móti undirrituðum í líkamsræktarsalnum hjá Fram í Úlfarsárdalnum nokkrum dögum eftir að Íslandsmeistaratitillinn var tryggður og partýstandið sem því fylgdi næstu daga. Fullkomið skref á þessum tímapunkti Eftir tveggja ára veru hjá Fram er Tryggvi á leið út til Austurríkis í atvinnumennskuna þar sem að hann hefur samið við eitt besta liðið þar í landi, Alpla Hard sem spilar undir stjórn Íslendingsins Hannesar Jóns Jónssonar. „Þessi möguleiki hefur verið í einhvern tíma á borðinu hjá okkur, við höfum verið að velja úr en mér fannst þetta bara lang mest spennandi kosturinn. Að fara til Hannesar, þó svo að ég hafi ekki reynslu af honum þá er ég búinn að heyra marga góða hluti. Ég held að hann sé frábær þjálfari sem hugsar mjög mikið um líkamlegt atgervi leikmanna sinna. Svo er Tumi Steinn Rúnarsson gamall samherji minn hjá Val þarna líka. Hann hefur sagt mér frábæra hluti af þessu félagi, ég tel þetta fullkomið skref fyrir mig á þessum tímapunkti.“ Kostirnir sem Tryggvi hafði úr að velja voru nokkrir þrátt fyrir að tímabilið fyrir hann, þrátt fyrir Íslands- og bikarmeistaratitil, hafi ekki gengið áfallalaust fyrir sig. „Það var eitthvað sem stóð til boða en ég hef náttúrulega verið ofboðslega mikið meiddur. Ég byrjaði tímabilið með slitna hásin og kem ekki inn fyrr en í október/nóvember. Ég er að komast á skrið í desember þegar að ég fer úr axlarlið og svo brýt ég á mér höndina. Það voru kostir á borðinu en mér fannst þetta langmest spennandi. Þetta var ekki erfitt val.“ Hannes Jón er þjálfari Alpla Hard.Vísir/Getty En hvað er það sem gerir lið Alpla Hard spennandi valkost? „Hlutverkið sem Hannes er að bjóða mér. Hann er að bjóða mér gott hlutverk svipað því sem ég hef verið í hjá Fram sem aðal þristurinn í vörn og svo keyra upp seinni bylgjuna og koma eitthvað inn í sókninni. Svo tel ég það líka spennandi að fá íslenskan þjálfara í þessu skrefi. Ég held það hjálpi mér rosa mikið með að koma mér inn í tungumálið þrátt fyrir að maður sé aðeins búinn að æfa sig í Duolingo.“ Þekkti alla frá húsverðinum yfir í fólkið í stúkunni Framarar tvöfaldir meistarar á nýafstöðnu tímabili en það var skellur gegn Valsmönnum á síðasta tímabili sem hóf atlögu liðsins að titlunum tveimur. „Við byrjuðum 15.apríl í fyrra eftir að Valsararnir sópuðu okkur út og Rúnar Kárason liðsfélagi minn kom með þessa frægu ræðu sem allir eru að tala um þar sem hann sagði að við værum númeri of litlir. Við vorum mjög laskaðir þarna en töluðum okkur saman, fórum að lyfta á fullu og gera okkur klára í að verða Íslandsmeistarar að ári liðnu. Gera atlögu að öllum titlum. Einar þjálfari sagði það í upphafi tímabils að við ætluðum að stefna á alla titla, við gerðum það svo sannarlega.“ Einar Jónsson, þjálfari Fram fer yfir málin með sínum mönnum.Vísir/Diego Framarar sópuðu Val út í úrslitaeinvígi Olís deildarinnar, einvígi sem var sérstakt að mörgu leiti fyrir Tryggva sem var þar að spila á móti uppeldisfélagi sínu. „Maður átti kannski ekki alveg von á því að sópa þeim út 3-0. Þetta er frábært lið en við vorum líka bara ógeðslega vel undirbúnir. Ég var sjálfur búinn að undirbúa mig ógeðslega vel fyrir þetta einvígi. Við vissum að við þyrftum að stoppa einhverja þarna og það tókst ógeðslega vel. Við vorum náttúrulega bara stórkostlegir í þessu einvígi, sóknar- og varnarlega og stuðningurinn sem við fengum var náttúrulega bara gígantískur á meðan að það vantaði aðeins upp á hjá Völsurunum. Þetta var bara frábært.“ Þetta voru mjög erfiðir leikir fyrir mig. Mér finnst erfitt að koma þarna, maður þekkir alla frá húsvörðunum yfir í þjálfarana og fólkið í stúkunni. Maður bjóst ekki við þessu en það var sætt að vinna þetta.“ Tryggvi tók skrefið frá Val árið 2023. „Einar hafði samband við mig og mér fannst það strax spennandi, hann bauð mér frábært hlutverk. Valur gerði það líka en mér fannst ég þurfa að gera eitthvað meira. Maður var fyrir aftan leikmenn eins og Magnús Óla og Róbert Aron sem mér finnst vera með betri leikmönnum deildarinnar og hafa verið síðustu ár. Ég þurfti að gera eitthvað sjálfur þótt það hafi verið erfitt en ég sé ekki eftir því í dag.“ Skapið hljóp með hann í gönur Tryggvi spilar með tilfinningum sínum og þær geta farið með hann í gönur. Það sannaðist fyrr á tímabilinu, einmitt gegn gömlu félögunum í Val, þegar að hann fékk að líta rauða spjaldið. Hafandi ekki náð sér á strik í leikjum gegn Val yfir höfuð fór rauða spjaldið illa í Tryggva sem strunsaði inn í klefa og í bræði sinni kýldi hann í vegg. Fór það ekki betur en svo að hann braut á sér höndina og við tók vera fjarri vellinum. „Það er lítið annað að gera en að hlægja bara að þessu í dag. Þetta var náttúrulega helvíti fúlt. Ég er leikmaður sem spilar með tilfinningum sínum, ég held það sjáist alveg inn á vellinum þegar að maður er að spila að maður gefur allt í þetta. Ég held það sé ekkert leyndarmál, það sáu það allir sem sjá vildu að ég átti mjög erfitt uppdráttar gegn Val. Var búinn að vera lélegur í öllum leikjunum á móti þeim frá því að ég skipti yfir í Fram. Maður vill þetta ógeðslega mikið.“ Tryggvi Garðar Jónsson í baráttunni fyrr á tímabilinuVísir/Vilhelm „Þetta var líka fyrsti leikurinn eftir að við urðum bikarmeistarar, það var talað um þessa bikarþynnku en við vildum allir komast yfir það. Ég átti hauskúpuleik, fer eitthvað inn í klefa og maður missir sig. Ég læri bara af þessu. Ég vissi ekki alveg hverju ég ætti von á þegar að ég kem heim fúll eftir leik eftir að hafa brotið á mér höndina en ég er heppinn að vera með gott fólk í kringum mig sem komu mér strax aftur af stað. Það er allt í lagi með höndina núna, maður lærir af þessu, næst kýlir maður bara með vinstri.“ Leið hræðilega Í kjölfar meiðslanna fyrr á tímabilinu var skiljanlega andleg líðan Tryggva Garðars ekki eins og best verður á kosið eftir þetta atvik. „Mér leið náttúrulega bara hræðilega. Ég vissi lítið hvað ég væri búinn að gera sjálfum mér þarna en var bara fúll og pirraður út í sjálfan mig. Gat ekkert annað. Ég talaði bara strax við Einar þjálfara, hann var ekkert rosalega sáttur með þetta en við ákváðum að koma mér aftur inn á gólfið eins fljótt og við gætum. Ég kom inn í undanúrslitunum og gat varla kastað bolta því við vorum búnir að teipa höndina á mér í döðlur. Svona er boltinn. Ég fel það ekkert að ég er leikmaður sem spilar með tilfinningum sínum, ég vil ógeðslega mikið gera þetta allt en stundum missir maður sig.“ Tryggvi Garðar Jónsson kveður Fram sem Íslands- og bikarmeistari og er nú á leið í atvinnumennskuna.vísir/Anton Tímabilinu lauk hins vegar á góðu nótunum með Íslandsmeistaratitli og fram undan spennandi tímar í atvinnumennskunni í Austurríki þar sem að Tryggvi ætlar að halda áfram að vinna titla „Maður er uppalinn í Val og vill alltaf vinna titla. Ég vann með Val og núna með Fram og langar bara að halda því áfram. Næsta markmið mitt er bara að fara til Austurríkis og halda áfram að vinna þar.“
Olís-deild karla Fram Mest lesið Missti typpið út úr buxunum en náði samt besta tíma ársins Sport John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Körfubolti Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Fótbolti Átti fullkomið hlaup fyrir aftan nöfnu sína frá Moldóvu Sport Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fótbolti Keypti net í fluginu út á EM til að horfa á Systraslag Sport Eir Chang sló Íslandsmet liðsfélaga síns og Ísland vann 3. deildina Sport Vissu ekki að hún hefði skipt um landslið Sport Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Körfubolti Fleiri fréttir Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Enn á ný er Íslendingur á bak við sigur Magdeburg í Meistaradeildinni Gísli fékk „deja vu“: Árangur sem aðeins Íslendingar hafa náð Gísli Þorgeir bestur í annað sinn Gísli Þorgeir og Ómar Ingi Evrópumeistarar Nantes vann bronsið sem Barcelona nennti ekki Hetjuleg harka hjá Ómari og Gísla fleytti Magdeburg í úrslit Misstu sinn besta mann en fóru létt með undanúrslitaleikinn Sonurinn smitaði Aron af handa-, fóta- og munnsjúkdómi Landsmeistari í sextánda sinn á ferlinum Þrjár erlendar til nýliðanna á Akureyri „Stress og spenningur að flytja einn út og þurfa læra á uppþvottavél“ Rúnar látinn fara frá Leipzig Rut bætist í stóran hóp sem kvatt hefur landsliðið „Einvígi sem hefur verið magnað að taka þátt í“ Viðar Símonarson látinn Tók við verðlaunum merktur Aroni sem var veikur heima Sjá meira