Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 28. maí 2025 16:07 Brad Pitt segir skilnaðinn ekki hafa verið neitt mál. AP Bandaríski leikarinn Brad Pitt hefur nú í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega um skilnað sinn við leikkonuna Angelinu Jolie, en þau skildu fyrir átta árum. Í viðtali við tímaritið GQ, sem birtist í tilefni af nýjustu kvikmynd hans F1, segir Pitt að skilnaðurinn hafi „ekki verið neitt stórmál“.
Jolie sótti um skilnað þann 19. september 2016, eftir tveggja ára hjónaband og tólf ára samband þeirra. Þau náðu loks samkomulagi þann 30. desember síðastliðinn. Saman eiga þau sex börn. Pitt ræddi við tímaritið GQ bæði um nýjustu kvikmynd sína og skilnaðinn. Þegar hann var spurður hvort hann hefði fundið fyrir létti þegar skilnaðurinn gekk loks í gegn, svaraði hann: „Nei. Mér fannst þetta ekki stórt. Bara eitthvað sem varð loksins að veruleika. Lagalega.“ Nokkrum dögum eftir skilnaðinn var Brad Pitt sakaður um að hafa misþyrmt börnunum sínum í einkaþotu með því að hafa öskrað ítrekað á þau og beitt þau líkamlegu ofbeldi. Talað var um að það hefði verið örsök skilnaðarins. Hann var ekki ákærður af yfirvöldum og neitaði Jolie að lögsækja hann. Sjá einnig: Brad Pitt sakaður um að misþyrma börnunum Fjórum mánuðum síðar birtu hjónin sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau sögðust ætla að leysa málið fyrir luktum dyrum og að allar upplýsingar um skilnaðinn yrðu trúnaðarmál. Síðan þá hefur málinu verið líkt við kalt stríð, þar sem ásakanir og upplýsingar á báða bóga hafa lekið til fjölmiðla. Talsmaður Pitt vildi hvorki staðfesta né tjá sig um samkomulagið í desember, en heimildarmaður sagði í samtali við tímaritið People í mars síðastliðnum að Pitt væri ánægður með að málið væri að baki og að samband hans við nýju kærustuna Ines de Ramon væri mjög gott. Síðustu ár hafa þau aðallega deilt um forræði yfir börnunum og eignarétti á franska sveitasetrinu og víngerðinni Château Miraval sem er metin á rúma 22,6 milljarða króna. Pitt kærði Jolie í febrúar 2022 fyrir að hafa selt sinn hlut í setrinu. Hún kærði hann til baka og sagði hann vera í hefnigjörnu stríði við sig.
Hollywood Ástin og lífið Skilnaður Angelinu Jolie og Brad Pitt Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Sjá meira