Ómar óstöðvandi í sigri Magdeburg Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. maí 2025 18:45 Ómar Ingi átti virkilega góðan leik. Javier Borrego/Getty Images Íslenski landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon átti stórleik fyrir Magdeburg er liðið vann nauman og mikilvægan sigur gegn Eisenach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.
Þýskalandsmeistarar Magdeburg eru í harðri baráttu um þýska meistaratitilinn þetta tímabilin og var því búist við því að liðið myndi vinna nokkuð þægilegan sigur gegn Eisenach, sem situr í 11. sæti deildarinnar. Heimamenn í Magdeburg höfðu yfirhöndina stærstan hluta leiksins, en áttu í stökustu vandræðum með að hrista gestina af sér. Staðan var jöfn þegar flautað var til hálfleiks, 18-18. Í síðari hálfleik náðu heimamenn betri tökum á leiknum og náðu mest fjögurra marka forskoti. Þannig var munurinn þegar tæpar tíu mínútur voru til leiksloka, en þá skoruðu gestirnir fjögur mörk í röð og jöfnuðu metin. Við tóku jafnar og spennandi lokamínútur, en að lokum voru það heimamenn í Magdeburg sem stóðu uppi sem sigurvegarar, lokatölur 33-32. Eftir sigurinn situr Magdeburg í þriðja sæti þýsku deildarinnar með 47 stig eftir 29 leiki, þremur stigum minna en toppliðin Füchse Berlin og Melsungen. Magdeburg á þó leik til góða og getur minnkað bilið niður í eitt stig. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur í liði Magdeburg með tíu mörk, en hann gaf einnig tvær stoðsendingar. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir liðið og lagði upp önnur fjögur.
Þýski handboltinn Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Haraldur Franklín nálgast Opna breska Sport Þjóðhátíð þegar Grænhöfðaeyjar komst áfram Sport Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira