Tap í fyrsta leik Alba Berlin Smári Jökull Jónsson skrifar 17. maí 2025 19:21 Martin Hermannsson töpuðu í dag. Vísir/Getty Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlin töpuðu í dag fyrir liði Ulm í 8-liða úrslitum þýsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.
Leikurinn í dag var fyrsti leikur liðanna í einvígi þeirra í 8-liða úrslitum en þrjá sigra þarf til að komast í undanúrslit. Alba Berlin lenti í 7. sæti deildakeppninnar en Ulm í 2. sæti og því sigurstranglegra fyrir einvígið. Gestirnir frá Berlín byrjuðu leikinn betur. Þeir leiddu 27-20 eftir fyrsta leikhlutann og komust mest níu stigum yfir í upphafi þess annars. Þá náðu heimamenn 13-0 áhlaupi og breyttu stöðunni úr 34-25 í 38-34 sér í vil. Staðan í hálfleik var 45-40 og leikurinn í járnum. Um miðjan þriðja leikhluta náðu heimamenn öðru áhlaupi og komust þrettán stigum yfir fyrir fjórða leikhlutann. Þar náði lið Alba mest að minnka muninn niður í sex stig en komust ekki nær en það. Lokatölur 94-83 og Ulm því komið með forystu í einvíginu. Martin Hermannsson lék í tæpar tuttugu mínútur í leiknum í dag. Hann skoraði fjögur stig, gaf fjórar stoðsendingar og tók tvö fráköst. Liðin mætast í leik tvö á miðvikudag.
Þýski körfuboltinn Mest lesið Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Frétti af Schumacher og fékk sjokk: „Átti að fara njóta lífsins“ Formúla 1 Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Fortuna 0-1| Dönsku meistararnir þurftu að hafa fyrir hlutunum Fótbolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Ísland - Serbía | Stelpurnar okkar stefna á EM Körfubolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú Fótbolti „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Íslenski boltinn Ísold verður bolabítur og heldur til á upphafsslóðum REM næstu árin Sport Fleiri fréttir Elvar með sautján stig gegn sínu gamla félagi Martin stoðsendingahæstur í sigri Ísland - Serbía | Stelpurnar okkar stefna á EM Nýtt fyrirkomulag á vali leikmanna í stjörnuleik NBA „Þjálfun snýst um samskipti“ Rebekka Rut spilar fyrsta landsleikinn í kvöld Ármenningar leggja árar ekki í bát og leita að nýjum Kana „Mér finnst við vera að taka skref í rétta átt fyrir framtíðina“ Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Stjórinn sem skipti Doncic frá Dallas missir starfið Bæði Florída-liðin unnu á flautukörfu í nótt og svona fóru þau að því Lofuðu Óla Óla og fengu hann svo í beina útsendingu úr búningsklefanum Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Blikarnir taplausir á toppnum Sonur Dominique Wilkins með vindmyllutroðsluna í blóðinu Kári og Kristó eru skemmtilegasta kombóið í þessari deild NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Martin stigahæstur með tvöfalda tvennu Keflvíkingar bæta framherja frá Slóveníu í hópinn NBA vill koma deild í Evrópu á koppinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Óli Óla: Við getum alveg eins hrokkið upp af á morgun Uppgjörið: Ármann - Tindastóll 77-110 | Tindastóll of stór biti fyrir Ármann Varð sá hávaxnasti í sögunni Tvítug körfuboltakona með tímamótafjárfestingu Sjá meira