Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 12. maí 2025 16:00 Einhvern veginn svona er gert ráð fyrir að verkið muni líta út þegar það hefur verið sett upp á Eldfelli. Olafur Eliasson, Visualisation for The Wanderer’s Perspective, 2023; Commissioned by Vestmannaeyjabær © 2023 Olafur Eliasson Listamaðurinn Ólafur Elíasson fær hátt í 88,5 milljónir króna frá ríkinu og Vestmanneyjabæ fyrir minnisvarða um eldgosið í Heimaey sem til stendur að reisa á Eldfelli. Þá er ótalinn kostnaður vegna gerðar göngustígs og annarra framkvæmda sem fyrirhugaðar eru á svæðinu en áætlaður heildarkostnaður gæti numið allt að 220 milljónum. Ríflega sex hundruð manns hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem minnisvarðanum er mótmælt.
Samkvæmt samningi bæjarins við félag dansk-íslenska listamannsins Ólafs Elíassonar fær félagið 600 þúsund evrur fyrir verkið sem ber vinnutitilinn Sjónarhorn flakkarans (e. Wonderer‘s Perspective). Sé miðað við meðalgengi dagsins í dag jafngildir þetta hátt í 90 milljónum króna. Eyjafréttir sögðu fyrst frá upphæðinni en miðillinn fékk samninginn afhentan eftir að hafa þurft að leita til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál en Vestmannaeyjabær neitaði upphaflega að afhenda Eyjafréttum samninginn. Áætla 100 milljónir í verkið og annað eins í göngustíginn Meðfylgjandi myndir frá Studio Ólafur Elíasson, SOE, sýna hvernig verkið á að líta út þegar það er tilbúið. Verkið hefur fengið vinnuheiti sem á íslensku má þýða sem Sjónarhorn flakkarans.Olafur Eliasson, Visualisation for The Wanderer’s Perspective, 2023; Commissioned by Vestmannaeyjabær © 2023 Olafur Eliasson Verkið á að virkja skilningarvit gesta með litabreytum sem hannaðar eru í kringum staðsetningu verksins með tillit til sólar og landslags.Olafur Eliasson, Visualisation for The Wanderer’s Perspective, 2023; Commissioned by Vestmannaeyjabær © 2023 Olafur Eliasson „Það er ennþá verið að gera ráð fyrir 200 til 220 milljónum í heildina. Það sem er öruggt það er allur hluturinn sem snýr að listamanninum sjálfum og verkinu, það er að segja þessum kúpli, eða þessu pavillioni eins og hann kallar það sjálfur. Það eru um 100 milljónir, það fer eftir því hvað gengið er á evrunni á hverjum tíma,“ segir Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar í Vesmannaeyjum. Þá er gert ráð fyrir að minnsta kosti öðru eins vegna göngustígarins sem gæti kostað á bilinu 100 til 120 milljónir að sögn Páls. „Það er ekki búið að endurgera kostnaðaráætlunina fyrir hann vegna þess að það er ekki hægt að gera það nákvæmlega fyrr heldur en að skipulagsvinnunni er endanlega lokið og hún er bara að klárast þessa dagana,“ segir Páll. Þar af styður ríkissjóður verkefnið um 60 milljónir. Páll birti þessa mynd á samfélagsmiðlum af sér ásamt listamanninum Ólafi Elíassyni og Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra frá íbúafundinum sem fram fór í lok mars.Facebook Ekki er gert ráð fyrir kostnaði vegna uppbyggingar bílastæðis inni í þessum tölum, en að sögn Páls hefði þurft að ráðast í gerð bílastæða alveg óháð uppsetningu listaverksins. „En það eru ekki stórar upphæðir í þessu samhengi og hefði þurft að ráðast í þá framkvæmd alveg burtséð frá þessu listaverki,“ segir Páll. Hluti íbúa ekki hrifinn af hugmyndinni Fram kom í fréttum í desember í fyrra að hafin væri undirskriftasöfnun þar sem áformum um minnisvarðann er mótmælt. „Við undirrituð mótmælum fyrirhugaðri röskun á ásýnd, og tilheyrandi kostnaði við gerð listaverks á Eldfelli,“ segir um listann en undir hann skrifuðu 602 á meðan undirskriftasöfnun stóð yfir. Íbúar í Vestmannaeyjum eru um 4.500 talsins. Sjá einnig: Vilja ekki sjá listaverk á Eldfelli Fjallað var um listann við umfjöllun málsins í umhverfis- og skipulagsráði bæjarins en ráðið samþykkti þann 28. apríl síðastliðinn tillögu að breyttu aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna uppbyggingar listaverksins og tillögu að deiliskipulagi Eldfells. Fjallað var um verkefnið á íbúafundi í mars en í fundargerð ráðsins segir að það sé mat sérfræðings sem fenginn var til að meta umhverfisáhrif að framkvæmdir vegna gönguleiðar á svæðinu séu afturkræfar. Fulltrúar D-lista í minnihluta sátu hjá við afgreiðslu málsins og taka í bókun undir áhyggjur íbúanna sem skrifuðu undir listann. „Meirihluti E- og H- lista eru enn sannfærð um að umrætt listaverk verði bænum til sóma og lýsa yfir ánægju með að skipulagsvinnu sé að ljúka,” segir hins vegar í bókun meirihlutans. Ríkið styður verkefnið um 60 milljónir Samningurinn vegna kaupa á sérhönnuðu verki eftir listamanninn var undirritaður í maí í fyrra en tilefnið er fimmtíu ára goslokaafmæli í Heimaey. Við sama tilefni var einnig undirritaður samningur við menningar- og viðskiptaráðuneytið um verkefnastyrk vegna aðkomu ríkisins að listaverkinu. „Listaverkið verður einstakt á heimsvísu og það eina sem inniheldur eldfjall. Verkið er verkfræðilega flókið og samanstendur af listaverki og gönguleið sem staðsett verður á Eldfelli og mun virkja skilningarvit gesta með litabreytum sem hannaðar eru í kringum staðsetningu verksins með tillit til sólar og landslags,” sagði meðal annars um verkið í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ á sínum tíma. Annað sjónarhorn.Olafur Eliasson, Visualisation for The Wanderer’s Perspective, 2023; Commissioned by Vestmannaeyjabær © 2023 Olafur Eliasson Þá var hönnun og undirbúningur við verkið þegar hafinn en ríkisstjórnin samþykkti árið 2022 að veita tvær milljónir til bæjarins vegna hugmyndavinnu við minnisvarða auk þess sem skipuð var nefnd sem falið var að annast undirbúning að kaupum og uppsetningu minnisvarðans. Í síðustu viku var síðan undirritaður samningur milli atvinnuvegaráðuneytisins og Vestmannaeyjabæjar um verkefnastyrk til gerðar göngustígs í hlíðum Eldfells í tengslum við verkið. Stuðningur ráðuneytisins við verkefnið nemur sextíu milljónum króna en gildistími samningsins er til ársloka 2025. Gönguleiðin á að liggja frá verkinu og hringinn í kringum gíginn í Eldfelli. Saman eiga listaverkið og gönguleiðin að mynda eina sjónræna og listræna heild þar sem eldgígurinn sjálfur er í miðpunkti að því er segir í tilkynningunni.
Vestmannaeyjar Menning Skipulag Heimaeyjargosið 1973 Styttur og útilistaverk Mest lesið Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Innlent Hefur ekki hugmynd um hve margir telji sig eiga bókun Innlent Bað auðjöfra um pening: Hét því að halda stríðinu áfram Erlent Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Erlent Alvarleg mistök við vistun barna í Reykjanesbæ Innlent Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Innlent Deila um hjartastopp endaði með tugmilljóna bótum Innlent Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Erlent Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Innlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Fleiri fréttir Foreldrar segja lögreglu gera lítið úr meintu kynferðisbroti á barni sínu á leikskólaaldri Alvarleg mistök, dýrara í baðlónin og páskaveðrið Snekkjan fékk undanþágu frá hafnbanni Mætti með haglabyssu á lögreglustöðina á Hverfisgötu Harma að áhyggjur íbúa séu hundsaðar Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrirheit ríkisstjórnarinnar Bjóða út framkvæmdir vegna Sæbrautarstokks Annar í áframhaldandi gæsluvarðhaldi vegna árásarinnar Of stór biti að kyngja án íbúakosningar Stórt skref í einföldun leyfisveitinga fyrir orkuverkefni: „Við erum rétt að byrja“ Kostnaður við útför Davíðs var fimm milljónir króna Holtavörðuheiði líklega lokuð til morguns Hlaut stjörnulaga skurði eftir árás með skiptilykli 1,2 milljarðar á milli í bílastæðadeilu við nýjan Landspítala Rúv fær 165 milljónir frá ESB til að vinna þætti um vatn Hefur ekki hugmynd um hve margir telji sig eiga bókun Ráðherra fari með rangt mál Rýmka bílastæðareglur en höfnuðu tillögu sem gengur lengra Deila um hjartastopp endaði með tugmilljóna bótum Ekki gert ráð fyrir því að eini sýslumaðurinn hafi aðsetur á höfuðborgarsvæðinu Alvarleg mistök við vistun barna í Reykjanesbæ Tekur undir gagnrýni á umdeildan fyrirlestur eigin stofnunar Bein útsending: Árangur í krabbameinsmeðferð – hvað getum við bætt? Meint kynferðisbrotamál rannsakað í tvígang en fellt niður Röskva bar sigur úr býtum Hokin af reynslu og vill stórt egg fyrir strákinn Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Norðurevrópskir bandamenn funda á Íslandi á næsta ári Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Sjá meira