Sjúklingur settur í fangaklefa Arnar Þór Jónsson skrifar 30. apríl 2025 12:00 Hér er þriggja ára gömul frétt sem ég fékk senda í gær til upprifjunar á sturluninni sem greip flesta landsmenn (og yfirvöld) 2020-2023, sturlun sem var verri en Covid-19 því hjarðsturlunin hafði verri afleiðingar: Hún leiddi til efnahagskreppu, félagslegrar einangrunar, ofneyslu áfengis og lyfja, olli sálrænu tjóni (kvíða, þunglyndi, einmanaleika) og birti einhvers konar siðrof þar sem samband borgaranna við yfirvöld gerbreyttist og stjórnarskráin var tekin úr sambandi. Allt var þetta verra en veiran sjálf og allt þetta tjón var af mannavöldum. Hverjir báru þar þyngsta ábyrgð? Jú, þetta var allt framkvæmt af sérfræðingum (sem hafa menntast til þröngsýni) og ráðamönnum (sem höfðu engin ráð önnur en óráð). Fyrri áætlunum, sem áður höfðu gilt og snerust allar um að verja frjálst samfélag (með áherslu á að verja og styðja þá sem yrðu veikir) var öllum hent í ruslið þegar C19 birtist. Grímuskylda, bólusetningar, lokanir fyrirtækja, fjarlægðarmörk, samkomutakmarkanir, plastskilrúm ... allt til að svipta fólk réttindum og frelsi. Valdboð og harðræði var innleitt undir yfirskini lýðheilsu. Ísland, eins og önnur vestræn ríki, er með stjórnarskrá sem verndar frelsi einstaklingsins. En þegar C19 skall á var stjórnarskráin sett í frysti. Dæmi: Fólki var smalað á sóttvarnahótel (sett í stofufangelsi) samkvæmt ákvörðun sóttvarnalæknis (sem fór með nokkurs konar alræðisvald). Þvert gegn lögum beitti sóttvarnalæknir valdi gegn fólki sem ekkert lá fyrir um að hefði smitast af veirunni, en samkvæmt sóttvarnalögum mátti aðeins takmarka athafnafrelsi þeirra "sem grunur leikur á að hafi verið útsettir fyrir smiti". Skyndilega bjuggum við í ríki þar sem allir lágu undir grun og þar sem einn maður mátti skerða frelsi fólks (ferðafrelsi, fundafrelsi o.fl.) með ákvörðun sem ekki var unnt að fá skriflega og ekki unnt að bera undir dóm. Í tilviki "covid-sjúklingsins" sem vísað er til í fréttinni frá 2022 sér maður fyrir sér frelsissviptan vesalings mann í stofufangelsi á hótelherbergi sem hugsanlega hefur farið aðeins of oft í mini-barinn og svo laumast út til að reykja ... og var þá handtekinn af lögreglu! Ef maðurinn var í raun "sjúklingur" hefði þá ekki farið betur á að vista hann á sjúkrahúsi? "Sjúklingurinn" virðist ekki hafa verið veikari en svo að hann þótti best geymdur í fangaklefa. Lesendur geta svo ímyndað sér hvernig slíkur "sjúkraflutningur" fór fram í lögreglubílnum og hvernig hann samræmdist sóttvarnareglum. Allt þetta tímabil sem hér um ræðir gerðu stjórnvöld aðför að persónufrelsi almennings og mannréttindum. Í raun fólu aðgerðirnar í sér aðför að stjórnarskránni. Í stað réttarríkis vöknuðu Íslendingar upp við að þeir bjuggu í sóttvarnaríki þar sem allt var valdhöfum leyfilegt í nafni ætlaðs "öryggis". Í nafni "öryggis" tók fjölmiðlanefnd þátt í viðamiklli alþjóðlegri ritskoðun með þeim "árangri" að þúsundir myndbanda með "röngum upplýsingum" voru "fjarlægð" af netinu. Í nafni "öryggis" var skólum og vinnustöðum lokað, samkomustöðum var sömuleiðis lokað, fundir voru bannaðir, mótmælendur skrumskældir, óvísindaleg fjarlægðartakmörk sett á. Öllum má vera ljóst að frelsissvipting á hótelherbergi samræmist illa kröfum stjórnarskrár um réttláta málsmeðferð og að viðamikið eftirlit lögreglu gekk yfir mörk friðhelgis einkalífs, auk þess sem framganga stjórnvalda braut margvíslega gegn því grunnviðmiði að í frjálsu samfélagi gildi enn meginreglan "Minn líkami, mitt val". Allt var þetta gert vegna órökrétts ótta við C19 (IFR 0,3%), í blindri hollustu við fyrirmæli "þríeykisins", í þjónkun við hagsmuni lyfjaframleiðenda og til að framfylgja öllu þessu var hræðsluáróðri beitt til að tryggja hlýðni almennings. Eftir sitjum við með skaða á réttarríkinu, þar sem stjórnvöldum leyfðist að fótum troða ákvæði stjórnarskrár um borgaralegt frelsi og innleiða hér ritskoðun. Frammi fyrir þessu ber okkur að íhuga og kalla eftir umræðu um hver muni koma frelsi okkar til varnar þegar næsta ógn birtist við sjóndeildarhringinn. Er líklegt að embættismennirnir komi okkur þá til varnar? Stjórnmálamennirnir? Dómararnir? Fjölmiðlarnir? Háskólamennirnir? Eða getur verið að við verðum sjálf að fara að taka ábyrgð á frelsi okkar og framtíð? Allt ætti þetta að vera okkur dýrmæt lexía: Næst þegar þetta gerist þá hljótum við að geta gert betur, því við höfum einfaldlega ekki efni á því að fara svona illa að ráði okkar aftur, en auk þess er lífið of dýrmætt, hver stund, hvert andartak er gjöf sem okkur ber að nýta vel. Tilvera okkar hér snýst um að heiðra lífið. Við megum ekki vera í svo miklum ótta við dauðann að við hættum að lifa. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnar Þór Jónsson Mest lesið Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Kannski“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher skrifar Skoðun Upplýst umræða og framsal ríkisvalds Margrét Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar Sjá meira
Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun
Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson Skoðun
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar
Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun
Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson Skoðun