Gjammandi áhorfandinn biður McIlroy afsökunar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. mars 2025 11:31 Rory McIlroy er í toppbaráttunni eftir fyrsta hringinn á Players meistaramótinu. afp/Jared C. Tilton Áhorfandinn sem kallaði í átt að Rory McIlroy á TBC Sawgrass vellinum í Flórída hefur beðist afsökunar á framferði sínu.
Á æfingahring fyrir Players meistaramótið á þriðjudaginn kallaði áhorfandi á McIlroy þegar hann sló kúluna út í vatn. Hann líkti því við klúður McIlroys á Masters mótinu 2011. McIlroy gekk í kjölfarið í átt að áhorfandanum, tók síma hans og gekk í burtu. Áhorfandanum var svo vísað í burtu af vellinum en fékk símann sinn aftur. Áhorfandinn, sem heitir Luke Potter og æfir golf hjá Texas háskólanum, hefur nú beðist afsökunar á því hvernig hann lét. „Sjáðu til, ég gerði mistök og gengst við þeim. Ég biðst afsökunar. Meira þarf ekki að segja. Það var gott að læra af þessu,“ sagði Potter. Þjálfari Potters hjá Texas háskólanum baðst jafnframt afsökunar og sagði að uppákomuna vandræðalega. Hann sagði að Potter hefði sent skriflega afsökunarbeiðni til McIlroys. Norður-Írinn lék á fimm höggum undir pari á fyrsta hring Players meistaramótsins. Hann er einu höggi á eftir efstu mönnum.
Golf Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Enski boltinn Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Móðir og sonur keppa bæði á þessum Ólympíuleikum Sport Dagskráin: Super Bowl og stórleikur Liverpool og Manchester City Sport Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira