Lýðræðið sigrar Snorri Ásmundsson skrifar 25. febrúar 2025 13:32 Um leið og fjölmiðlar og aðrir átta sig á heilindum mínum í framboði til formanns Sjálfstæðisflokksins og sýna þá virðingu að stilla mér upp við hlið annarra frambjóðenda þá mun lýðræðið sigra. Það er merkilegt að vera skilinn svona útundan þrátt fyrir að Sjálfstæðisstefnan segi til um annað. Þetta er mjög áberandi og margir hafa haft samband við mig og hneykslast og allir sammála um að við séum að verða vitni af sýndarlýðræði í sinni verstu mynd. Við getum hneykslast á lýðræði annarra landa eins og í Rússlandi og í Bandaríkjunum, en lýðræði okkar er ekki til fyrirmyndar og fjölmiðlar mega taka það til sín og ættu að skammast sín. Fjölmiðlar eiga sínar risaeðlur sem eru oftast ferkantaðir úr sér gengnir besservissar og of oft fengnir sem álitsgjafar í ýmsum umræðum sem taka umræður oft á svo kjánalegt plan. Ef Ísland og Sjálfstæðisflokkurinn hefur einhvern tímann haft þörf á mér og mínu innleggi er það einmitt núna. En það er óttinn sem fær okkur til að dæma og eins og ein vinkona mín sem er vel innmúruð í Sjálfstæðisflokknum sagði við mig einu sinni” Snorri það eru allir hræddir við þig” ég spurði hana þá hvernig í ósköpunum stæði á því og þá svaraði hún” því þú ert ekki í neinu liði. Ég held hún hafi margt til síns máls og hef oft fundist fólk ekki skilja mig og ályktað út í bláinn. En ég er svo sem ekki saklaus og viðurkenni að ég hef ekki gert mikið í að leiðrétta misskilning fólks enda ekki fundist það í mínum verkahring, en ég hef mjög áreiðanlegar heimildir fyrir því að ég sigri formanns kosningarnar um næstu helgi. Ég get því miður ekki upplýst hvaðan þær heimildir koma. Sigurinn verður óvæntur fyrir suma og hann verður afgerandi. Sá hlær mest og best sem síðast hlær. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Snorri Ásmundsson Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson Skoðun Fúsk eða laumuspil? Eva Hauksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Virðum réttindi intersex fólks Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun Ha ég? Já þú! Ekki satt! Hver þá? Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samfélagslegur spegill lögreglumannsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Rétt klukka síðan 1968: Höldum í síðdegisbirtuna Erlendur S. Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Um leið og fjölmiðlar og aðrir átta sig á heilindum mínum í framboði til formanns Sjálfstæðisflokksins og sýna þá virðingu að stilla mér upp við hlið annarra frambjóðenda þá mun lýðræðið sigra. Það er merkilegt að vera skilinn svona útundan þrátt fyrir að Sjálfstæðisstefnan segi til um annað. Þetta er mjög áberandi og margir hafa haft samband við mig og hneykslast og allir sammála um að við séum að verða vitni af sýndarlýðræði í sinni verstu mynd. Við getum hneykslast á lýðræði annarra landa eins og í Rússlandi og í Bandaríkjunum, en lýðræði okkar er ekki til fyrirmyndar og fjölmiðlar mega taka það til sín og ættu að skammast sín. Fjölmiðlar eiga sínar risaeðlur sem eru oftast ferkantaðir úr sér gengnir besservissar og of oft fengnir sem álitsgjafar í ýmsum umræðum sem taka umræður oft á svo kjánalegt plan. Ef Ísland og Sjálfstæðisflokkurinn hefur einhvern tímann haft þörf á mér og mínu innleggi er það einmitt núna. En það er óttinn sem fær okkur til að dæma og eins og ein vinkona mín sem er vel innmúruð í Sjálfstæðisflokknum sagði við mig einu sinni” Snorri það eru allir hræddir við þig” ég spurði hana þá hvernig í ósköpunum stæði á því og þá svaraði hún” því þú ert ekki í neinu liði. Ég held hún hafi margt til síns máls og hef oft fundist fólk ekki skilja mig og ályktað út í bláinn. En ég er svo sem ekki saklaus og viðurkenni að ég hef ekki gert mikið í að leiðrétta misskilning fólks enda ekki fundist það í mínum verkahring, en ég hef mjög áreiðanlegar heimildir fyrir því að ég sigri formanns kosningarnar um næstu helgi. Ég get því miður ekki upplýst hvaðan þær heimildir koma. Sigurinn verður óvæntur fyrir suma og hann verður afgerandi. Sá hlær mest og best sem síðast hlær.