Conte vill fá Garnacho í staðinn fyrir Kvaratskhelia Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. janúar 2025 15:01 Alejandro Garnacho hefur verið orðaður við brottför frá Manchester United. getty/James Gill Antonio Conte, knattspyrnustjóri Napoli, vill fá Alejandro Garnacho, leikmann Manchester United, í staðinn fyrir Khvicha Kvaratskhelia sem er væntanlega á förum frá ítalska félaginu.
Um helgina greindi Conte frá því að Kvaratskhelia hefði óskað eftir því að fara frá Napoli í þessum mánuði. Líklegast þykir að Georgíumaðurinn fari til Paris Saint-Germain. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum er Conte þegar byrjaður að undirbúa brotthvarf Kvaratskhelias og vill fá Garnacho til að fylla skarðið sem hann skilur eftir sig. Garncho var í byrjunarliði United í leiknum gegn Arsenal í bikarkeppninni í gær en hafði þar áður verið á bekknum í fimm leiki í röð. Kvaratskhelia sló í gegn með Napoli tímabilið 2022-23 þegar liðið varð ítalskur meistari með yfirburðum. Illa gekk á síðasta tímabili en Napoli hefur náð vopnum sínum á ný eftir að Conte tók við liðinu. Napoli er með fjögurra stiga forskot á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar en liðin í næstu tveimur sætum, Inter og Atalanta, eiga leiki til góða. Kvaratskhelia hefur skorað fimm mörk og lagt upp þrjú í sautján deildarleikjum í vetur.
Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Neymar hlustaði á hjartað sitt Fótbolti Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Fótbolti Reynir við áttunda heimsmeistaratitil sinn Sport Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt Íslenski boltinn Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Körfubolti Búið að breyta reglunni um víti sem grætti Atlético-menn Fótbolti Næstum því allt gekk upp hjá íslenska liðinu Sport Fleiri fréttir Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Sjá meira