Vanhæfi, valdníðsla og dýraníð - ekkert mál fyrir Bjarna Ben! Ole Anton Bieltvedt skrifar 8. desember 2024 06:02 Eftir að hafa búið erlendis í 27 ár, hef ég nú í 8 ár verið mikið hér og fylgzt með. Á þessum tíma hef ég fengið þá tilfinningu, að formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktson, væri spilltasti og siðlausasti - ósvífnasti - stjórnmálamaður landsins. Vanhæfi Bjarni Benediktsson varð að segja af sér ráðherradómi, fjármálaráðherraembættinu, í október í fyrra, vegna vanhæfi. Sá, sem kvað upp vanhæfisdóminn, var enginn annar en Umboðsmaður Alþingis. Af þessu tilefni sagði Bjarni: „Ég tel mikilvægt að virða álit Umboðsmanns Alþingis, sem er sérstakur trúnaðarmaður þingsins“. Vel mælt, en hjóm eitt. 14. október, líka í fyrra, sagði Bjarni af sér embætti fjármálaráðherra, en einhenti sér sama dag, í embætti utanríkisráðherra. Vanhæfur í eitt ráðherraembætti, flottur í annað. Nú, sem helzti fulltrúi þjóðarinnar víða um heim. Glæsileg D-flétta. Fannst öllum þetta í lagi? Flestir telja ráðherraembætti fullt verkefni fyrir venjulegan mann, enda fylgir mikil þýðing og ábyrgð störfum ráðherra. Bjarni Ben skellti sér þó ekki aðeins í forsætisráðumeytið, heldur bætti hann við, svona með fingrasmelli, fyrst, Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og svo Matvælaráðuneytinu. Ég leyfi mér að fullyrða, að svona flétta, sem aðeins finnst í lægstu skúffu siðferðis, sæmdar og sjálfsvirðingar, hefði ekki geta gerzt í neinu öðru norrænu landi. Valdníðsla Fyrst skal sagt frá dæmi um það, sem talið er misnotkun valds, valdníðsla, í Noregi: Anette Trettebergstuen, sem verið hafði þingmaður verkamannaflokksins frá 2005 og skipuð hafði verið menningar- og jafnréttisráðherra í ríkisstjórn Jónas Gahr Støre 2021, varð uppvís af því, að hafa útvegaði vini/vinum sínum, eða mælt með þeim, til opinberra starfa. Þetta var þar talin alvarleg misnotkun á valdaaðstöðu. Valdníðsla. Jonas lagði að henni að víkja, sagði þetta mjög alvarlegt brot, sem hún og samþykkti. Tvö dæmi um alvarlega valdníðslu Bjarna Ben: Fyrst: Stærsta og veigamesta embætti íslenzku utanríkisþjónustunnar er sendiherraembættið í Washington. Þessu embætti hafa yfirleitt þyngdarvigtarmenn íslenzkra stjórnmála, fyrrverandi þingmenn og ráðherrar, kjörnir leiðtogar, eins og Thor Thors, Jón Baldvin, Guðmundur Árni og Geir Haarde gegnt. Í stuttri utanríkisráðherratíð sinni lét Bjarni Ben sig hafa það, að skipa unga konu, náinn vin og samherja, sinn eiginn aðstoðarmann til 8 ára, ómenntaða og með öllu óreynda í utanríkismálum, 49 ára gamla fjölmiðlakonu, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, aðstoðarmann Bjarna og svo framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs - sem mest, eða alfarið, fjallar um innlend viðskiptamál - sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Í Noregi eða öðru siðmenntuðu landi, er hætt við að Bjarni hefði fengið sparkið út í hafsauga fyrir svo heiftarlega og óforskammaða misnotkun valds. Svo það mál, sem akkúrat hér og nú er á dagskrá: Bjarni og nokkrir aðrir innstu koppar í búri Sjálfstæðisflokksins hafa verið nátengdir Kristjáni Loftssyni í Hval. Hafa þeir stutt hann og hans hvalveiðar með ráði og dáð, enda er sagt, að þeir hafi fengið góðan fjárstuðning fyrir. Í hópi stuðningsmanna eru greinilega líka Þórdís Kolbrún og Áslaug Arna. Háþróuð, lifandi spendýr sprengd og tætt, limlest til dauða, ekkert mál fyrir sjálfsumglaðar Sjálfstæðiskonur. Beita þó rökum, sem fáir skilja, sennilega ekki einu sinni þær sjálfar. Við þetta bætist, að ættimenni Bjarna hafa verið tengd Hval, verið hluthafar og/eða hagsmunaaðilar þar, t.a.m. var föðurbróðir Bjarna, Einar Sveinsson, stjórnarformaður Hvals. Flestir hefðu talið, að samband Bjarna við Hval væri svo náið, að hann - sem stjórnmála- og valdamaður - væri ekki hæfur til að fara með málefni félagsins, hvað þá að veita þeim harðlega umdeilt og krítískt veiðileyfi, allra sízt í starfsstjórn, þar sem stjórnarflokkarnir hans, D og B, voru að enda við að tapa 10 þingsætum í kosningum, og hafa nú aðeins 19 þingsæti af 63 á bak við sig. Höfðu glatað öllu trausti og umboði. Við bætist, að flokkarnir, sem unnu þingkosningarnar, S, C og FF, með 36 þingsæti, munu væntanlega mynda nýja ríkisstjón fljótlega, eru verðandi valdhafar og hafa allir lýst yfir andstöðu við hvalveiðar. Það bætist líka við, að starfshópur, sem var skipaður, þegar Katrín Jakobsdóttir gengdi starfi Matvælaráðherra, hefur það hlutverk að skoða og gera heildstæða úttekt á hvalveiðum, lagaumhverfi þeirra, bæði með tilliti til veiðanna og velferðar dýranna, mun skila niðurstöðum í febrúar nk. Hér skal líka rifjað upp, að síðasta skoðanakönnun Maskínu sýnir, að 51% þjóðarinnar er andvígt hvalveiðum, en aðeins 29% hlynnt. Skyldi Bjarna varða eitthvað um skoðanir og vilja fólksins í landinu? Allir menn með lágmarks sómakennd, eða grundvallar ábyrgðartilfinningu, allir ábyrgir og heiðarlegur menn, hefðu því látið leyfisumsókn Hvals bíða afgreiðslu þar til ný og réttkjörin ríkisstjórn hefði tekið við og/eða niðurstaða hefði legið fyrir frá starfshópnum um stöðu hvalveiða. Fyrir veiðarnar sjálfar - ef leyfi hefði þá yfir höfuð verið veitt af réttum valdhöfum - hefði þetta engu máli skipt, þar sem undirbúningur þarf ekki að hefjast fyrr en í marz/apríl, en veiðarnar hafa venjulega hafizt seint í júní. Dýraníð 8. maí í fyrra birti MAST skefilega skýrslu um hvalveiðar sumarið 2022, kolsvarta skýrslu, sem sýndi, að lífið hafði verið murkað úr 41% dýranna, með fólskulegum- og skelfilegum hætti, stórfellt og hryllilegt dýraníð á háþróuðum spendýrum framið, en hvalir eru sambærilegir við fíla, meðal landdýra, að allri gerð, skyni, tilfinningum og lífsháttum. Fór um alla góða menn, sem skoðuðu þessa skýrslu. Grétu sumir, en þó greinilega ekki Bjarni Ben. Um þessa skýrslu varðaði hann greinilega lítið, hvað þá um hryllilegt kvalræði háþróaðra dýra. Ekki hef ég séð, hversu margar hvalkýr voru drepnar, en sumar þeirra hafa verið með langt genginn kálf í kviði, og aðrar með lifandi kálf sér við hlið, sem hefur veslast upp og soltið í hel. Skýrsla MAST for svo formlega til Fagráðs um velferð dýra 22. maí, og kom niðurstaða frá Fagráði 16. júní: „Niðurstaða ráðsins var sú, að sú veiðiaferð, sem beitt er við veiðar stórhvela, samrýmist ekki ákvæðum laga nr. 55/2013 um velferð dýra“. Var dýraníðið þannig staðfest. Gaf ráðið jafnframt til kynna, að það telji, að ekki sé hægt að bæta svo úr, með núverandi skipum, tólum og veiðiaðferðum, að veiðar geti samræmst þessum lögum. Áður en ég fór til útlanda, var ég einn af fylgjendum Sjálfstæðisflokksins. Nú hef ég örgustu óbeit á honum. Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar