„Þær eru svolítið þyngri“ Valur Páll Eiríksson skrifar 1. desember 2024 18:19 Ágúst var tekinn tali í keppnishöllinni í Innsbruck fyrir leik kvöldsins. Vísir/VPE „Þetta leggst bara vel í mig. Við erum búnar að hvíla vel núna og undirbúa liðið vel. Mér finnst stelpurnar mjög stemmdar,“ segir aðstoðarlandsliðsþjálfarinn Ágúst Jóhannsson fyrir leik kvennalandsliðs Íslands við Úkraínu á EM í Innsbruck.
Ísland tapaði naumlega fyrir Hollandi í fyrsta leik. Hollenska liðið spilar hratt en aðeins öðruvísi leik má búast við í kvöld. Á meðan Ísland reyndi að hægja á hollenska liðinu á föstudag má gera ráð fyrir að stelpurnar okkar reyni að keyra hraðann upp gegn hægara úkraínsku liði. „Já. Það er það. Þær eru svolítið þyngri og við ætlum að reyna að keyra svolítið meira á þær en við gerðum gegn Hollandi. Þær eru oft seinar til baka. En við þurfum að sýna góða frammistöðu til að ná í tvo punkta,“ segir Ágúst. En skapar það meiri pressu að hafa staðið sig svo vel gegn toppliði Hollands í fyrsta leik? „Við svo sem reynum bara að undirbúa okkur eins vel og við getum. Við tökum margt gott með okkur úr síðasta leik og ég er sannfærður um það að spennustigið er gott og vonandi rétt stillt. Með góðri frammistöðu er ég viss um það að við náum að vinna okkar fyrsta leik á EM,“ segir Ágúst. Leikur kvöldsins hefst klukkan 19:30 og verður lýst beint á Vísi.
Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2024 Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Handbolti Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Enski boltinn „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Enski boltinn Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Enski boltinn Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Fleiri fréttir Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Íslendingarnir atkvæðamiklir í kvöld Sandra með tíu í þrettán marka sigri ÍBV Engin skoraði meira en Elín Klara Með 32 mörk í síðustu þremur leikjum Þungt Evrópukvöld á Ásvöllum Valur steinlá gegn Blomberg-Lippe „Tækifæri fyrir aðra að stíga upp og sýna sig“ Bjarni með tíu og KA áfram í toppbaráttu Haukar við toppinn og HM-farar fögnuðu á Selfossi Ákvörðun þjálfarans að taka ekki átján leikmenn: „Hefur ekkert með fjárhagsstöðuna að gera“ „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ HM hópurinn tilkynntur: Margir reynsluboltar horfnir á braut „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Baldur Fritz fór á kostum og Afturelding styrkti stöðuna Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Lovísa með níu í góðum sigri Allar landsliðskonurnar komust á blað Bikarmeistararnir fara norður Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Sjá meira