Ísland tapaði með minnsta mun Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. nóvember 2024 18:24 Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst hjá Íslandi í kvöld. vísir/viktor Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði með minnsta mun gegn Sviss ytra í undirbúningi sínum fyrir komandi Evrópumótið sem hefst á fimmtudaginn í næstu viku, lokatölur 30-29. Liðin mætast að nýju á sunnudaginn kemur.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði með minnsta mun gegn Sviss ytra í undirbúningi sínum fyrir komandi Evrópumótið sem hefst á fimmtudaginn í næstu viku, lokatölur 30-29. Liðin mætast að nýju á sunnudaginn kemur. Leikurinn var nokkuð jafn frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu en heimaliðið var þó alltaf hænuskrefi á undan. Sviss leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, staðan þá 18-16. Íslenska liðið jafnaði leikinn tvívegis í síðari hálfleik, í 22-22 og 25-25 en allt kom fyrir ekki og heimaliðið vann á endanum eins marks sigur. Elín Klara Þorkelsdóttir fór fyrir íslenska liðinu en hún skoraði sex mörk. Þar á eftir kom Steinunn Björnsdóttir með fimm mörk. Perla Ruth Albertsdóttir og Thea Imani Sturludóttir skoruðu fjögur mörk hvor. Í markinu varði Elín Jóna Þorsteinsdóttir átta skot og Hafdís Renötudóttir þrjú, þar af eitt vítakast. Liðin mætast að nýju á sunnudaginn kemur en það verður síðasti leikur þjóðanna fyrir EM. Þar er Ísland í riðli með Hollandi, Úkraínu og Þýskalandi. Riðilinn verður leikinn í Innsbruck í Austurríki.
EM kvenna í handbolta 2024 Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Fótbolti Fyrirtækin sem léku á FIFA og græddu á banninu Fótbolti Lenti saman á æfingu og þjálfarinn var ánægður með það Fótbolti Haraldur Franklín nálgast Opna breska Golf FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Fótbolti Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Fótbolti Franska lögreglan vill að Demantamótinu í París verði aflýst Sport Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira