Við lifum lengur – Jákvæð áskorun fyrir lífeyrissjóði Magnús Helgason skrifar 28. október 2024 11:01 Lífeyrissjóður er í senn einfaldur og flókinn Rekstur lífeyrissjóðs er í senn einfaldur og flókinn. Einfaldur í þeim skilningi að hann tekur á móti iðgjöldum, ávaxtar þau og greiðir út lífeyri til sjóðfélaga. Hann er þó flókinn að því leyti að ýmislegt getur gerst á þeim langa tíma frá því að sjóðfélagar byrja að greiða til hans iðgjöld og þangað til þeir hefja töku lífeyris. Algengt er að sjóðfélagar greiði fyrst í sjóðinn um tvítugt og hefji töku lífeyris um 67 ára aldur. Miðað við lífslíkur geta sjóðfélagar vænst þess að vera á lífeyri í um 20 ár. Þetta getur því verið tæplega 70 ára samband. Sagan segir okkur að á svo löngu tímabili getur ýmislegt gerst svo sem uppgangur í efnahagskerfum heims, efnahagsáföll, stríð, tækniframfarir, framfarir í læknavísindum eða hvað annað sem framtíðin færir okkur. Það er því mikilli óvissu háð hver endanleg fjárhæð lífeyris verður þegar að þeim tímamótum kemur í okkar lífi að við hefjum töku lífeyris. Það er enginn aðili, ekki einu sinni ríkið, nægjanlega öflugur til að tryggja að allar meginforsendur í rekstri lífeyrissjóðs haldist óbreyttar um áratuga skeið. Sjóðfélagar bera þess vegna áhættuna á ávöxtun eigna og einnig svokallaða lýðfræðilega áhættu. Lýðfræðileg áhætta snýr að stærstum hluta að því hversu lengi við megum vænta þess að lifa og þar af leiðandi í hversu mörg ár við megum gera ráð fyrir að fá greiðslur úr lífeyrissjóðum. Blessunarlega lifum við lengur Undanfarna áratugi, jafnvel árhundruð, hafa orðið stórkostlegar framfarir á flestum sviðum okkar lífs. Sem dæmi má nefna efnahagslegar framfarir, tækniframfarir, framfarir í læknavísindum, stórbættan húsakost, betra fæði fyrir þorra fólks, framfarir í öryggismálum og framfarir í lifnaðarháttum. Allar þessar framfarir hafa gert það að verkum að við lifum lengur en áður. Fyrir liggja til að mynda gögn frá Danmörku sem ná aftur til ársins 1840 sem sýna hvernig lífslíkur hafa aukist gríðarlega mikið, nánast á sama hraða allan tímann. Undirritaður hefur jafnframt spurt sig hvort þetta muni halda áfram næstu áratugi eða árhundruð. Munu næstu kynslóðir ávallt lifa lengur en fyrri kynslóðir og mun það gerast á sama hraða og hefur verið hingað til? Hvað sem því líður er þetta ánægjuleg þróun og allra best er ef við lifum vel og lengi við góða heilsu. Góðar fréttir en áskorun þó Þetta er ánægjuleg þróun og er jafnframt krefjandi áskorun fyrir lífeyrissjóði. Lífeyririnn þarf að greiða lengur til sjóðfélaga. Eins og áður segir tekur lífeyrissjóðurinn á móti iðgjöldum, ávaxtar þau og á þess vegna eignir sem eiga að standa undir réttindum sjóðfélaga. Í bókhaldi sjóðsins eru réttindi og væntar greiðslur til sjóðfélaga í framtíðinni kallaðar skuldbindingar. Þegar skuldbindingar lífeyrissjóða eru reiknaðar eru notaðar lífslíkur til að áætla hversu lengi að meðaltali lífeyrissjóðurinn mun greiða sjóðfélögum lífeyri. Fram til ársins 2021 voru notaðar lífslíkur sem reiknaðar voru út frá gögnum nokkur ár aftur í tímann, þ.e. sögulegum gögnum. Þessar lífslíkur voru notaðar til að meta stöðu lífeyrissjóða, sömu lífslíkur fyrir alla sjóðfélaga, bæði unga og aldna. Þessar lífslíkur endurspegluðu því ekki þá þróun sem átt hefur sér stað í langan tíma, að hver kynslóð er að lifa lengur en fyrri kynslóðir. Grundavallarbreyting á forsendum um lífslíkur Í desember 2021 samþykkti fjármála- og efnahagsráðherra nýjar forsendur um lífslíkur sem átti að nota til að reikna skuldbindingar lífeyrissjóða. Þessar nýju forsendur byggðu ekki á lífslíkum úr fortíðinni líkt og áður, heldur voru með spá um að yngri kynslóðir muni lifa lengur en þær eldri. Þessar nýju lífslíkur endurspegla þess vegna þá þróun að við erum sífellt að lifa lengur, þó mismikið eftir aldri. Það sem raungerðist við þessa ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra var að skuldbindingar lífeyrissjóða í landinu hækkuðu í einu vetfangi um nokkur hundruð milljarða. Þessi hækkun á skuldbindingum hefur líklega numið yfir 400 milljörðum króna fyrir allt lífeyrissjóðakerfið, þar af hækkuðu skuldbindingar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna um 77 milljarða króna. Skuldbindingar vegna yngri sjóðfélaga jukust meira en skuldbindingar vegna þeirra sem eldri eru vegna þess að forsendurnar gera ráð fyrir að þeir yngri lifi lengur. Ef engar mótvægisaðgerðir yrðu framkvæmdar vegna þessarar grundvallarbreytingar á forsendum um lífslíkur myndi það bitna á eldri sjóðfélögum, því þeir yngri fengju sinn lífeyri greiddan lengur en þeir eldri og fyrst í lok árs 2021 var gert ráð fyrir því í bókum lífeyrissjóða. Aldrei hefur ein breyting á forsendum haft jafnmikil fjárhagsleg áhrif á skuldbindingar lífeyrissjóða hér á landi en sú sem hér um ræðir. Sanngjarnar mótvægisaðgerðir koma í veg fyrir flutning fjármuna á milli kynslóða Við hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna hófum undirbúning á viðbrögðum við þessum breytingum árið 2020 í samstarfi við tryggingastærðfræðing sjóðsins og lögfræðinga. Niðurstaðan var sú að málefnalegt og sanngjarnt væri að ráðast í mótvægisaðgerðir. Var það gert með því að reikna skuldbindingar vegna hvers árgangs með gömlu lífslíkunum og nýju lífslíkunum og að hlutfall hvers árgangs eftir breytinguna, sem fjármála- og efnahagsráðherra samþykkti í desember 2021, yrði það sama og fyrir breytinguna. Þetta þýddi að verðmæti réttinda sjóðfélaga væru eins fyrir og eftir breytinguna. Mótvægisaðgerðirnar snerust því um að allir sjóðfélagar væru eins settir fyrir og eftir breytingu á forsendum um lífslíkur. Góð staða sjóðsins á þeim tíma gerði það reyndar að verkum að á sama tíma var hægt að hækka réttindi sjóðfélaga jafnt yfir alla sem þýddi að þeir einstaklingar sem voru á lífeyri fengu hækkun á sínum lífeyri en ekki lækkun. Hægt var að verja viðkvæmasta hópinn, þ.e. þá sem komnir voru á lífeyri. Án mótvægisaðgerða hefði þessi grundvallarbreyting á forsendum um lífslíkur bitnað á eldri sjóðfélögum í formi mögulegra skerðinga í framtíðinni, því nú er gert ráð fyrir lífeyrisgreiðslum yfir lengri tíma til þeirra yngri. Þessi breyting á lýðfræðilegum forsendum gáfu því tilefni til að bregðast við með þeim hætti að áhrifin væru ólík eftir hópum sjóðfélaga. Mótvægisaðgerðirnar voru framkvæmdar í ársbyrjun 2023, ári eftir að nýjar lífslíkutöflur voru innleiddar. Það var mat sérfræðinga, stjórnar og stjórnenda sjóðsins að þarna væri sanngjörn, málefnaleg og lögleg leið farin svo ekki myndu fjárhæðir færast til á milli kynslóða, frá þeim eldri til þeirra yngri. Sjóðfélagi ósáttur með hinar sanngjörnu mótvægisaðgerðir Einn sjóðfélagi var ósáttur við útfærslu mótvægisaðgerðanna og höfðaði dómsmál á hendur sjóðnum til ógildingar og féllst héraðsdómur á röksemdir sjóðfélagans. Lífeyrissjóður verzlunarmanna taldi fullt tilefni til að áfrýja dómi héraðsdóms til Hæstaréttar og verður málið flutt 30. október næstkomandi. Ekki er loku fyrir það skotið að dómurinn verði fordæmisgefandi fyrir aðra lífeyrissjóði. Ef Hæstiréttur staðfestir dóm héraðsdóms munu mótvægisaðgerðirnar verða teknar til baka sem þýðir að fjárhæðir í formi áunnina réttinda færast á milli kynslóða, frá þeim eldri til þeirra yngri. Ítilfelli Lífeyrissjóðs verzlunarmanna eru þetta hið minnsta 77 milljarðar króna. Það sem gerist jafnframt er að það verður líklegra en ella að skerða þurfi réttindi sjóðfélaga sem hefur áhrif til lækkunar á lífeyrisgreiðslum til sjóðfélaga. Lífeyrissjóðurinn hefur enga hagsmuni aðra en að tryggja réttlæti og jafnræði meðal sjóðfélaga sinna. Við höfum fulla trú á því að sú aðferð sjóðsins til að gæta jafnræðis milli sjóðfélaga við grundvallarforsendubreytingu vegna hækkandi lífaldurs fái staðfestingu Hæstaréttar. Okkar eina markmið er að vinna að hag allra sjóðfélaga og að fyllsta réttlætis sé gætt. Höfundur er forstöðumaður áhættustýringar hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Lífeyrissjóðir Eldri borgarar Mest lesið Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson Skoðun Trumpistar eru víða Trausti Breiðfjörð Magnússon Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín Skoðun Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun Skoðun Skoðun Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag Bolli Héðinsson skrifar Skoðun „Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum Eyrún Arnarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál Grímur Atlason skrifar Skoðun Í vörn gegn sjálfum sér? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks skrifar Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Trumpistar eru víða Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar Skoðun Samkeppnin tryggir hag neytenda Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Stóðhryssur ekki moldvörpur Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Við getum gert betur Einar Bárðarson skrifar Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Ábyrg stefna í útlendingamálum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Týndu hermennirnir okkar Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Gerist þetta aftur á morgun? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar Jón Daníelsson skrifar Skoðun Að reikna veiðigjald af raunverulegum aflaverðmætum Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Sjá meira
Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín Skoðun
Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar
Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar
Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar
Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar
Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir skrifar
Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín Skoðun