Hvað er fram undan í íslenskum stjórnmálum? Reynir Böðvarsson skrifar 14. ágúst 2024 16:00 Hvað er fram undan í íslenskum stjórnmálum nú þegar líður að hausti 2024, þessu velta sjálfsagt margir fyrir sér. Eru stjórnarslit í vændum eða ætlar stjórnin að reyna að þrauka áfram þrátt fyrir gífurlegar óvinsældir. Er kannski verið að vonast eftir einhverjum stóratburði sem gæti legið handan við hornið, Covid2 eða kannski enn stærra eldgos á Reykjanesi en hingað til, ekki veit ég. Ég tel mig þó vita að enginn í ríkisstjórninni óskar beinlínis hamfara en eru samt kannski að bíða aðeins átekta ef ske kynni. Já ef eitthvað kæmi kannski til bjargar þá liti málið mögulega betur út, hægt væri að benda á blóraböggul. Stjórnarandstaðan á þingi lítur er ekki mikið skárri, Samfylkingin þegir í raun þunnu hljóði og vill ekki rugga bátnum í von um að fylgið sem skoðanakannanir sýna haldist, Viðreisn talar bara áfram um lausn allra vandamála sem er að þeirra mati ESB og Miðflokkurinn reynir eftir fremsta Hvað er framundan í íslenskum stjórnmálum nú þegar líður að hausti 2024, þessu velta sjálfsagt margir fyrir sér. Eru stjórnarslit í vændum eða ætlar stjórnin að reyna að þrauka áfram þrátt fyrir gífurlegar óvinsældir. Er kannski verið að vonast eftir einhverjum stóratburði sem gæti legið handan við hotnið, Covid2 eða kannski enn stærra eldgos á Reykjanesi en hingað til, ekki veit ég. Ég tel mig þó vita að enginn í ríkisstjórninni óskar beinlínis harmfara en eru samt kannski að bíða aðeins átekta ef ske kynni. Já ef eitthvað kæmi kanski til bjargar þá liti málið mögulega betur út, hægt væri að benda á blóraböggul. Stjórnarandstaðan á þingi lítur er ekki mikið skárri, Samfylkingin þeigir í raun þunnu hljóði og vill ekki rugga bátnum í von um að fylgið sem skoðanakannanir sýna haldist, Viðreisn talar bara áfram um lausn allra vandamála sem er að þeirra mati ESB og Miðflokkurinn reynir eftir fremsta megni að vera verri en Sjálfstæðisflokkurinn í útlendingaandúð þjóðernisrembu. Það eru helst Píratar sem stiga fram og benda á mikilvæg mál en virðast oft svo áttavilltir á vinstri-hægri skalanum að stundum er erfitt að taka þá alvarlega. Ég er á þeirri skoðun að mikilvægasta verkefni í íslenskum stjórnmálum nú er að losna við Nýfrjálshyggjuna, markaðsvæðingarbrjálæði djöfulsins sem á sér enga hliðstæðu í sögu mannkyns. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn eru ásamt Viðreisn boðberar þessara viðhorfa hér á Íslandi og sem er á heimsvísu á góðri leið með að tortíma jörðinni sem möguleg heimavist mannkyns. Hér á Íslandi standa þessir flokkar fyrir ótakmarkaðri nýtingu náttúruauðlinda til gagns fáum auðkífingum en til skaða fyrir okkur hin. Það er kominn tími til að fólk átti sig á að Sjálfstæðisflokkurinn er sérhagsmunaflokkur auðmanna sem hefur tekist um áratuga raðir að ljúga því inn á okkur að hann sé flokkur allra landsmanna. Við vitum nú að svo er ekki. Svo er það Framsóknarflokkurinn sem er í raun furðufyrirbæri í dag, á sér rætur sem hugsjónahreyfing samvinnufélaga og var til mikils gagns fram eftir síðustu öld þegar honum var rænt af eiginhagsmunaseggjum og markaðsvæddur. Þvílík örlög flokks Jónasar frá Hriflu! Í komandi þingkosningum er það því augljóst að baráttan stendur um hvort haldið verði áfram á braut nýfrjálshyggjunar eða hvort brugðið verði spori. Verður áfram ýtt undir framþróun neyslusamfélagsins, áfram þrýst á influttning ódýrs vinnuafls til þess að þessi þróun geti haldið áfram enn um sinn eða verður staldrað við. Ég held að það hvernig málum vindur fram velti mikið á Samfylkingunni. Hvernig kemur hún til með að horfa á sitt hlutverk sem jafnaðarmannaflokkur Íslands, verður hægrið ofaná þar eins og víða í systurflokkum í Evrópu eða sjá menn að sér? Það ætti öllum jafnaðarmönnum að vera ljóst að Nýfrjálshyggjan er ekki fær vegur til jafnra lífskjara. Það ætti ekki að vera nokkur vafi um hvaða leið jamnaðarmannaflokkur velur, en því miður er ég ekki viss um hvaða leið jamnaðarmannaflokkur Íslands, Samfylkingin, kemur til með að velja. Til þess að tryggja sjónarmið jafnaðarstefnunnar á Íslandi eftir næstu kosningar er ekki endilega það besta að kjósa Samfylkinguna heldur mögulega einmitt ekki. Ég skrifaði https://samstodin.is/opinion/bref-til-islenska-kratans-2024/ í vetur þar sem ég lýsti áhyggjum mínum yfir stöðu jafnaðarmanna á Íslandi. Margt bendir til þess að Samfylkingin sé frekar á leið til hægri síðustu misseri að hún sé hreinlega að verða að hægrikrataflokki. Langt til hægri á gamla vinstri-hægri skalanum sem við þekkjum frá Norðurlöndunum eftir seinna stríð. Þegar allar helstu framfarir þjóðfélaga kristaliseruðus í velferðarpólitíkinni, ekki minnst á Norðurlöndum þar sem háir skattar voru taldir sjálfsagðir til þess tryggja jöfnuð og velferð. Ekki hefur borið mikið á röddum í Samfylkingunni sem fara fram á róttækar leiðréttingar á skattakerfinu sem þó verður að telja nauðsynlegt ef rétta á kúrsinn. Samfylkingin þarf aðhald á Alþingi frá vinstri og þar er Sósíalistaflokkurinn eini sjáanlegi möguleikinn. Þar er mikið af hæfu fólki, góð tenging við verkalýðshreyfinguna sem er grundvallar atriði þegar kemur að baráttu fyrir réttlátara samfélagi og bættum lífskjörum til handa öllum, líka og ekki minnst þeirra lægst launuðu. Til þess að tryggja að snúið verði af braut nýfrjálshyggjunar á Íslandi þarf öflugar raddir á Alþingi sem eru óhræddar við að berjast fyrir réttindum vinnandi stétta og eru ekki með feimni gagnvart orðinu sósíalismi. Kjósendur sem telja sig til vinstri og aðhyllast jöfnuð og réttlæti í þjóðfélaginu gera best í að kjósa Sósíalistaflokkinn í næstu kosningum. Höfundur er jarðskjálftafræðingur á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reynir Böðvarsson Alþingi Mest lesið Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar