Spánverjar Ólympíumeistarar eftir maraþonleik gegn Frökkum Siggeir Ævarsson skrifar 9. ágúst 2024 18:50 Sergio Camello fagnar fyrra marki sínu í framlengingunni vísir/Getty Heimamenn í Frakklandi og Spánverjar mættust í úrslitaleik U23 liða í fótbolta á Ólympíuleikunum í kvöld í dramatískum leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í framlengingu.
Enzo Millot kom heimamönnum yfir á 11. mínútu en Spánverjar svöruðu með þremur mörkum í röð, þar af tveimur frá Fermín López, og leiddu 1-3 í hálfleik. Frakkar neituðu að gefast upp og sóttu án afláts í seinni hálfleik og settu mikla pressu á spænska liðið. Þeim tókst loks að brjóta ísinn á 79. mínútu þegar Maghnes Akliouche minnkaði muninn í eitt mark. Það leit þó allt út fyrir að Spánverjar myndu ná að halda út en á 94. mínútu fengu Frakkar vítaspyrnu. Dómari leiksins dæmdi vítið ekki strax en eftir skoðun í VAR var um augljóst brot að ræða. Á punktinn fór Jean-Philippe Mateta, annar af tveimur reynsluboltum liðsins, og skoraði af öryggi og því þurfti að grípa til framlengingar. Þar reyndist Sergio Camello hetja Spánverja. Hann skoraði fyrst á 101. mínútu og svo aftur í blálokin en leikurinn var flautaður af nánast strax eftir markið. Lokatölur 3-5 Spánverjum í vil sem fara heim með Ólympíugullið í knattspyrnu.
Fótbolti Ólympíuleikar 2024 í París Mest lesið Heimir fékk tilboð: „Pabbi vill ekki vera þar sem stuðningsmenn vilja hann ekki“ Fótbolti „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Íslenski boltinn Arsenal að missa menn í meiðsli Fótbolti Þungavigtin: Jói Kalli á Tene níu dögum fyrir bikarúrslitaleik Fótbolti Dagskráin í dag: Úrslitastund í Varsjá Fótbolti Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Atli Viðar segir Vöndu ekki réttu manneskjuna til að leiða KSÍ inn í framtíðina Íslenski boltinn Rebrov: Karakterinn lykilatriði Fótbolti Vonast til að Barcelona geti stöðvað sigurgöngu Lyon Fótbolti Fyrsti þjálfarinn í NBA fokinn Körfubolti Fleiri fréttir „Það verða breytingar“ Heimir fékk tilboð: „Pabbi vill ekki vera þar sem stuðningsmenn vilja hann ekki“ „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Rebrov: Karakterinn lykilatriði Dagskráin í dag: Úrslitastund í Varsjá Arsenal að missa menn í meiðsli Vigdís Lilja á skotskónum Hákon: Þú vilt spila þessa leiki Spánn og Austurríki við það að komast á HM ´26 Åge Hareide glímir við sjúkdóm Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Arna og Sædís spiluðu í sigri Våleranga „Eggert kominn með stóra brosið og allir glaðir“ Belgar í brasi og þurfa að bíða eftir HM-sæti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Bökuðu botnliðið í miðjum slag við Blika Tólfan boðar til partýs í Varsjá Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Lofar að fara sparlega með Isak Skrautlegur ferðadagur Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Hvernig umspil færi Ísland í? Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Króatar á HM en draumur Færeyja úti Afar óvænt tap þegar Finnar hylltu goðsögn Hjammi með mikla reynslu: „Kannski ekkert sérstakt í tuttugu tilraunum“ Sjá meira