Höfnuðu risatilboði í Orra sem heldur kyrru fyrir í Kaupmannahöfn Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. júlí 2024 15:32 Orri Steinn undirritaði nýjan samning við Kaupmannahafnarliðið í dag. FCK Orri Steinn Óskarsson er ekki á förum frá FC Kaupmannahöfn þrátt fyrir orðróma um annað. Hann hefur framlengt samning sinn við félagið til 2028.
Orri hefur verið leikmaður FCK síðan sumarið 2020 og var drjúgur í markaskorun fyrir yngri lið félagsins en tækifærin í aðalliðinu hafa verið af skornari skammti. Aðrir hafa verið honum ofar í goggunarröðinni, einna helst hinn stæðilegi Cornelius, og Orri mátt sætta sig við mikla bekkjarsetu á tímabilinu. Hann hefur þó nýtt tækifærin vel þegar þau gefast og skoraði meðal annars mark í sigri sem tryggði liðinu þátttökurétt í Sambandsdeildinni. Talið var að Orri vildi losna frá félaginu og finna meiri spiltíma annars staðar en svo virðist ekki vera. FCK hefur greinilega mikla trú á honum því félagið hafnaði á dögunum risatilboði frá Girona upp á 15 milljónir evra og endursamdi við Orra til ársins 2028. „Mig hefur alltaf dreymt um að eiga fast sæti í liðinu síðan ég kom til félagsins árið 2020 og ég hef mikinn metnað fyrir mínum störfum hjá FCK. Ég er með það markmið að verða markahæsti leikmaður Superliga á næsta tímabili og hjálpa liðinu að tryggja næsta titil,“ sagði Orri við undirritun samningsins.
Danski boltinn Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Åge Hareide glímir við sjúkdóm Fótbolti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti Skrautlegur ferðadagur Fótbolti Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Fótbolti FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal að missa menn í meiðsli Vigdís Lilja á skotskónum Hákon: Þú vilt spila þessa leiki Spánn og Austurríki við það að komast á HM ´26 Åge Hareide glímir við sjúkdóm Leiðin á HM: Sögulegar sættir í Varsjá Arna og Sædís spiluðu í sigri Våleranga „Eggert kominn með stóra brosið og allir glaðir“ Belgar í brasi og þurfa að bíða eftir HM-sæti Svona var fundur Arnars fyrir „dramatík í níutíu mínútur“ Bökuðu botnliðið í miðjum slag við Blika Tólfan boðar til partýs í Varsjá Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Lofar að fara sparlega með Isak Skrautlegur ferðadagur Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Hvernig umspil færi Ísland í? Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Króatar á HM en draumur Færeyja úti Afar óvænt tap þegar Finnar hylltu goðsögn Hjammi með mikla reynslu: „Kannski ekkert sérstakt í tuttugu tilraunum“ Rosenörn yfirgefur FH Taylor dæmir úrslitaleikinn í Varsjá Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Montiel til KA Marta getur aftur unnið verðlaunin sem voru nefnd eftir henni Sjá meira